Þriðjudagur 26.01.2010 - 14:42 - 46 ummæli

Miðborg Landsbankans: Icesave

Í mars 2009 var vinningstillaga kynnt að hönnun á nýjum höfuðstöðvum Landsbankans við Lækjartorg í Reykjavík. Þessi elsti banki landsins var að vísu gjaldþrota og hafði meðal annars arfleitt þjóðarbúið að innlánsskuldum sem urðu eitt erfiðasta deilumál alþingis í seinni tíð. En þegar allt virtist í besta lagi hafði bankinn efnt til alþjóðlegrar samkeppni um hönnun á nýjum höfuðstöðvum gegnt Arnarhóli milli Lækjartorgs og nýja tónlistar og ráðstefnuhússins. Vinningstillagan, launuð með 100 000 evrum, kom frá einum helsta spútnik samtímaarkitektúrs Bjarke Ingels, BIG Group, og samstarfsfólki hans hér á landi.

Hægt er að sjá tillöguna á heimsíðu BIG. Húsið er geysistórt og stórglæsilegt, það er úr gleri og stáli og snúið upp á það þannig þannig að það fer úr fjórum hæðum við Lækjartorg og rís upp í tíu hæðir sem mynda eins konar stefni sem snýr til norðurs í átt að tónlistarhúsinu. Húshliðin sem snýr að Arnarhóli er inndregin og myndar hvelfingu yfir breiðum tröppum. Höfundar tillögunnar sjá fyrir sér að þarna verði svið í skjóli hússins sem nota megi til tónleikahalds á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Þeir segja að einmitt á þessum stað sé sett upp tónleikasvið á þjóðhátíðardaginn. Það kemur líka fram að stefni hússins er tilvísun í skip Ingólfs Arnarsonar en hann er sagður hafa fundið landnámssúlur sínar reknar á land í Reykjavík. Það er því óhætt að segja að þjóðernislegar tilvísnanir vantar ekki í þetta ofurnútímalega hús og greinargerðina sem fylgir. Hér átti að verða til ný miðborg: Miðborg Landsbankans. Formaður dómnefndar var Björgólfur Guðmundsson sem var jafnframt formaður bankaráðs og einn helsti eigandi bankans. Varaformaður dómnefndar var Kjartan Gunnarsson varaformaður bankaráðs.

Það er gaman að skoða myndirnar af þróun þessa mikla mannvirkis og lesa í þær. Þar sést hvernig snúið er upp á klassíska grunnmynd af stóru húsi með porti í miðjunni og hæðunum svo raðað ofna á grunninn. Síðustu myndirnar eru af glerstefninu háa. Þar efst uppi og fremst er fundarherbergi. Þar stendur Björgólfur Guðmundsson. Það er heiðríkja yfir þessari mynd og fölskvalaus bjartsýni. Hér stendur formaðurinn stoltur í stafni og minnir helst á konung. Hann hefur haldið í austurveg og komið með mikil auðævi til baka fyrir þjóð sína. Hann hefur tekið land í Bretlandi og Hollandi og safnað þar digrum sjóðum. Hann byggir dýrlegar hallir fyrir þjóðina. Fyrir hans tilstilli er þjóðlífið nú borið uppi af alþjóðlegu fjármagni og þjóðhátíðin fær verðuga umgjörð. Þjóðhátíðin verður framvegis í boði og skjóli hans og bankans.

Raunar var fyrirhugað að allt svæðið þarna við Austurhöfnina yrði í boði bankans og Björgólfs. Eignahaldsfélagið Portus (í eigu Landsbankans og Nýsis) fékk það fyrir að byggja tónleikahúsið. Framkvæmdarstjóri Portus sagði mér að árið 2007 hefði allt verið stopp því Landasbankanum tókst ekki að útvega meir fjármagn. Það leið og beið. Nokkrum vikum síðar fór fjármagnið að flæða á ný og framkvæmdir héldu áfram af fullum krafti fram á haust 2008. Framkvæmdarstjórinn kvaðst ekki í nokkrum vafa að þarna voru Icesave-peningar á ferð. Það þýðir að tónlistarhöll okkar Reykvíkinga er að einhverju leyti í boði breskra líknarfélaga, bæjarfélaga, lögreglufélaga og einstaklinga sem settu sparnaðinn sinn inn á Icesave-reikninga árin 2007 og 2008.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (46)

  • Þetta er mjög merkilegt innlegg í Icesave-umræðuna. Nauðsynlegt er að kanna þetta nánar og fá framkvæmdastjórann til að lýsa málinu í áheyrn alþjóðar. Tilhugsunin um að veik börn og munaðarleysingjar í Bretlandi hafi verið meðal þeirra sem kostuðu þessa voldugu byggingu gæti hugsanlega vakið ugg óperugestum framtíðar, sérstaklega þeim sem ætla að taka þátt í að fella Icesave-samningana.

  • Ómar Ragnarsson

    Þetta minnir mig á þann aumingjaskap sem sýndur var að mínum dómi 17. júní í Reykjavík fyrir nokkrum árum þegar hann var haldinn í boði Og Vodafone og það blastir alls staðar við.
    Og þetta var í sjálfu “góðærinu” og segir sína sögu um það hugarástand sem þá hafði gripuð um sig. Þegar þessi þjóð getur ekki einu sinni haldið hátíðisdag sjálfstæðis síns án þess að selja það fyrirtækjum er illa komið fyrir henni.

  • Vefsíða Bjarka þessa er svo ofhönnuð að það er ekki viðlit að finna tengil í verkefnið.

  • Sigurgeir

    Dapurlegur málflutningur að spyrða tónlistarhúsið við þá fjárhagsóreiðu sem ríkir í íslensku samfélagi.
    Á sama hátt má spyrja;
    Eru þetta sömu peningarnir og streymdu inn á reikninga Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins á sama tíma ?

  • Illugi Jökulsson

    Tek undir með Sólveigu. Ég finn ekki tengil í þetta. Getur einhver mér snjallari fundið hann og gefið hér upp?

  • Karl Jóhann Garðarsson
  • Steingrímur Þórhallsson

    Ömurlegur málflutningur hjá manni sem er líklegast í atkvæðaleit, populismi, með þessu eru líklega fyrstu virkjanirnar sem byggðar voru á Íslandi í boði þeirra sem þjáðust í seinni heimstyrjöldinni og áttu að fá Marshall aðstoðina????

  • Rósa Lúxembúrg

    Sammála þér Steingrímur. Lyktar af atkvæðaveiðum.

  • Sigurgeir: þætti þér betra að ekkert sé fjallað um hvernig Landsbankinn aflaði þeirra peninga sem hann setti í tónleikahúsið?
    Allt þetta icesave-landsbankamál er frekar dapurlegt. Hinn mikli stuðningur Landsbankans við Sjálfstæðisflokkinn og nokkra frambjóðendur hans er skandall. Stuðningur hans við frambjóðendur Samfylkingar sömuleiðs

  • Leirfinnur

    Það skiptir bara engu máli varðandi Icesave reikningana hvert peningarnir fóru; annað hvort ber ríkinu að standa að baki innistæðutryggingasjóðnum eða ekki. Og það eru allir smámsaman að átta sig á, að lögum samkvæmt er ríkið ekki skuldbundið til þess.

  • Afhverju skrifarðu Icesave með “f”?

  • Eitt saunghús við sjávarsíðuna skiptir litlu máli varðandi Icesave og tekur því varla að nefna þá upphæð sem húsið kostar til samanburðar.
    Aðalatriðið er að menn finni hinn eina rétta tón þar innan dyra.
    Tengingin getur aftur á móti verið áhugaverð. Hverning menn brjótast um til að byggja sér minnisvarða.

  • Þegar “veldi” bjögganna stóð sem hæst bjó ég einu sinni til sjónvarpsaprílgabb í huganum; frétt um að búið væri að selja gamla bjögga Stjórnarráðshúsið. Þetta var rétt eftir að litli bjögginn fékk húsið á Fríkirkjuvegi. En svo var þetta kannski býsna langt frá gabbi eftir allt saman.

  • Af hverju að tengja Hörpu sérstaklega við Icesave og bresk líknarfélög? Því ekki að nefna frekar gjaldþrot Eimskipa uppá 230 milljarða? Eða Icelandic Group (Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna)?

    Auðvitað fóru Icesave peningar í allt sem Landsbankinn fjármagnaði á þessum tíma.

  • Sigursteinn Másson

    Athyglisverð ábending frá Hjálmari og dæmigert fyrir skort sumra á sjálfsgagnrýni og færni til rökrænnar hugsunar að snúa út úr þessu með pólitískum skotgrafarhernaði.

    Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að tónlistar- og ráðstefnuhúsið eigi að vera alþjóðlegt hús til marks um breytta tíma þegar þjóð út við ysta haf áttaði sig á því að það gekk ekki lengur að sýnast vera eitthvað annað og meira en hún raunverulega er. Sjálfstæðið grundvallast á samstarfi, ekki einleik.

    Ég er enn þeirrrar skoðunar að það sé fásinna að ríkissjóður Íslands klári einn þessa byggingu heldur eigi að leita alþjóðlegs samstarfs um þetta. Björk, Sigurrós , Kristinn Sigurmundsson og fleiri gætu kannski hjálpað okkur við þetta sem sendiherrar hússins.

    Það er engum blöðum um það að fletta að einhver hluti Icesave þýfisins skilaði sér í bruðlið á Íslandi. Okkur væri nær að viðurkenna það auðmjúklega sem og þær skuldbindingar sem íslensk stjórnvöld, þessi og hin fyrri, hafa gengist við.

  • Magga maur

    Sorg og reiði eru orðin sem koma í hugann þegar þessir Bjöggar eru nefndir á nafn.
    Þegar maður heyrir minnst á þetta Björgólfs nafn
    þá dettur manni í hug; svindl, svínarí, græðgi, óheiðarleiki, sjálfumgleði og flest annað sem eru lestir mannskepnunnar.
    Tel að þetta karlmannsnafn, Björgólfur leggist af á Íslandi.

  • Rósa Lúxembúrg

    Það er hrikalegt hvernig bæði Hjálmar og Sigursteinn tala á móti sjálfum sér og þá þjóðinni allri. Kyssa, eins go Steingrímur og kó, auðmjúklega vöndinn.

  • Það er ekki bara fínt að vita hvaðan peningarnir í steypuna komu, heldur nauðsynlegt. Samblástur Sjálfstæðsflokksins og Landsbankans er enginn orðrómur eða þvíumlíkt. Hagsmunir LB og FLokkssins vefast saman eins og teinar í kaðli. Þetta var sama appratið. Sömu playerarnir, sama “agenda” og sömu hagsmunir.

    Það er fullkomnlega eðlilegt að benda á þessu tegnsl og í raun aðeins meira. það er nauðsynlegt.

    Hjálmar á hrós skilið fyrir skúbbið og höfum í huga skaðann sem verður þegar viðskiptalífið kaupir sér stjórnmálamenn.

    -það er sko ekkert smáræðis eins og kellingin sagði.

  • Birgir Þ.

    Gaman aðessu. Ekki sammála öllu hjá Hjálmari, en mér finnst mikilvægt að skoða þetta Icesave mál í þaula… m.a. hvað gert var við alla þessa peninga. Samt leiðinlegt að bygging tónlistarhúss, eins þarft og það hefur nú lengi verið að mínu mati, skuli vera þátttakandi í þessum harmleik. Síðan finnst mér fyndið að einhverjir Sjérlókar Hólms komist að því að Hjálmar sé í atkvæðaleit. Auðvitað er hann í atkvæðaleit. Það er auglýsingabann hjá flestum flokkum, líka Samfylkingunni, svo að þetta er eina leiðin, að skrifa pistla eða bjóða gestum upp á kaffi og kleinur. Hjálmar vakti fyrst athygli mína fyrir frábæra þætti á Rás eitt (Krossgötur) þar sem hann var m.a. að skoða mjög vandlega atburðarásina á hinum svokallaða Höfðatorgsreit og þá meintu valdníðslu sem þeir EYKTAR menn stunduðu gegn íbúum í Túnunum. Það vantar einmitt svona menn í pólitíkina núna sem ÞORA að segja sína meiningu og láta ekki vaða yfir sig eða múta sér og hafa VIT á málunum.

  • Ólafur Auðunsson

    Við Hörpu.
    Enginn miðin útá rær
    enginn sést að bauki.
    Þetta er orðinn líflaus bær
    –ljótur þar að auki.

  • Linda Jónsdóttir

    Hvert er nafn þessa framkvæmdastjóra Portusar?

  • Áhorfandi

    Dámsamleg færsla – Stjarna er fædd!

    Samfylkingarinnar styður Icesave til þess að launa framlög Landsbankans og bresku lögreglunar. Ég hafði ekki áttað mig á þessari tengingu.

  • Takk fyrir samhengið Hjálmar, nú sem fyrr. Án þess er enginn skilningur og engu hægt að breyta. Ég treysti á þig að upplýsa okkur áfram og setja hlutina í samhengi.

  • Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir

    Mér sýnist að þau ykkar sem vegið sérstaklega að Hjálmari Sveinssyni fyrir þessa færslu séuð að skjóta sendiboðann.

    Ég er sammála ykkur, að það er vissulega dapurlegt að draumur okkar borgarbúa um gott tónleikahús verði líklegast ævarandi tengdur þeirri ömurlegu atburðarráð sem hér átti sér stað í aðdraganda hrunsins árið 2008. En það var ekki Hjálmar Sveinsson sem kom þeirri tengingu á. Hjálmar Sveinsson var hins vegar nægilega kjarkaður og heiðarlegur til að benda á þessi afar óheppilegu tengsl, -óheppilegu, vegna þess að þau kunna að eiga eftir að valda okkur mörgum siðferðilegum sársauka um langt skeið. Þessi ráðstöfun kann að verða sársaukafull lexía um skelfilega óstjórn og fyrirhyggjuleysi í skipulagsmálum borgarinnar.

    Má ég minna lesendur á að yfirvöld í London vildu loka útibúi Landsbankans í London og þar með Icesave netreikningunum um mitt ár 2008 vegna ískyggilegrar stöðu bankans (innihald skýrslu Willem Buiters og Anne Siberts (apríl-júli 2008) um stöðu Landsbankans var þá byrjað að kvisast út). Í ljósi þessarar stöðu Landsbankans olli gengdarlaus söfnun innistæðna inn á netreikninga Icesave í London og mikið útstreymi fjármagns úr útibúinu þar og úr landi breskum yfirvöldum miklum áhyggjum. Íslensk yfirvöld lofuðu á þessum tíma að tryggt yrði að Tryggingasjóður innistæðueigenda hefði nægilegt fjármagn til að mæta lágmarkstryggingum ef illa færi. Með það loforð hættu yfirvöld í London við að loka Landsbankaútibúinu þar.

    Hér má spyrja: Hvers vegna vildu stjórnendur Landsbankans hafa starfsemina í London í formi útibús? Jú, þannig höfuð þeir frjálsari hendur um það hvar og hvernig þeim fjármunum sem söfnuðust í London yrði varið. Hvers vegna var íslenskum yfirvöldum svo mikið í mun að tryggja áframhaldandi starfsemi útibúsins í London að þau gáfu út (pólitíska) yfirlýsingu um ríkisábyrgð á innistæðunum?

    Okkur hefur lengi dreymt um gott tónleikahús hér í Reykjavík, en ég spyr, – er sama hvaðan gott kemur?????

    Umræðan um tónleikahúsið, stærð þess og rekstrarlegar forsendur fyrir 320þúsund manna þjóð til að reka þetta hús er önnur umræða.

  • Elli kelling

    Þetta er ekki relevant í Icesave umræðuni, almennir skattgreiðendur höfðu ekkert um það að segja hvort Landsbankinn veitti fé til þessa eða hins. Allir þeir sem áttu fé í lífeyrissjóðum sem bankinn vistaði (og ryksugaði) eða peningamarkaðssjóðum gætu eins haldið því fram að þeirra fjármunir hefðu endað í þessu húsi.
    Almenningur var ekki spurður álits á þessu húsi en þarf nú að borga. Það þýðir ekkert fyrir Samfylkinguna að reyna að koma inn einhverju kollektífu samviskubiti hjá almenningi á Íslandi vegna Icesave. Honum blæðir alveg nóg samt.

  • Þórður Runólfsson

    Hvað er svona agalegt við það að viðurkenna að Tónlistarhúsið er reist fyrir blóðpeninga Bjögganna?

  • Á sinfóníutónleikum fyrir hartnær 30 árum gerðist ég eins og margir félagi “Áhugafólks um byggingu tónlistarhúss” og ég held að framlag mitt æ síðan hafi verið 250 krónur á mánuði, gjaldfært á VISA.

    Núna fyrst á dögunum fékk ég kveðju, og minntur á að eins og þúsundir annarra hafi ég lagt mitt að mörkum til að hús þetta verða að veruleika.

    Mér varð hugsað til frásagnarinnar um “eyri ekkjunnar” í Biblíunni. Kristur mat hennar framlag til musterisins í Jerúsalem miklu meira heldur en auðmannanna sem flögguðu fúlgum þeim sem þeir létu af hendi rakna.

  • Ingvar Jón Bates Gíslason

    Ég tek ofan fyrir Hjálmari Sveinssyni að taka þennan vinkil á tónlistarhúsið, eins sárt og það er. Ég er sammála Þórði Runólfssyni að við Íslendingar þurfum síst á tabúum að halda núna eins og sakir standa, því þennan vinkil þarf einfaldlega að rannsaka eins og svo margt annað.

    Síðasta færsla Sigurbjargar Sigurgeirsdóttur dregur fram það sem ég vildi sagt hafa: “…er okkur sama hvaðan gott kemur”?

    Ég vil bæta því við, að ef satt reynist að m.a. bresk líknarfélög hafi fjármagnað tónlistarhúsið við Reykjavíkurhöfn, væri réttast að meitla þann gjörning með prentstöfum í svartlitaða sjónsteypu hússins, sem er nú monumental að upplagi, svo hún vísi ekki aðeins í íslensku björgin heldur einnig ævarandi flónsku Frónbúa!

  • Það fyrsta sem manni dettur í hug, við að sjá svona byggingu, er, hornsteinninn hlýtur að vera verulega skakkur þarna. En það er bara ekkert skrítið að þetta sé allt skakkt og bjagað, það er nefnilega í samræmi við allan æviferil, og athafnir stórkrimmanns sem ætlaði að gera þetta að dæmi um eigin stórfengleik, gáfur og yfirskilvitlega hæfni, og ná því endanlega markmið, að blekkja allt og alla.
    En auðvitað brást það, eins og annað sem hann hefur komist með puttana í, gegnum flokkinn.

  • Hi,I’d like to link to your site.I’ve seen some other sites doing this and I thought it was a really good idea.So I thought why not provide the same feature for my readers,link me upHow to Get the Free Back LinkWith thanks, and sorry if I offended Cristi

  • Despite the way it feels, losing weight isn’t a mysterious process. It’s a simple matter of burning more calories than you eat. But, if it were really that simple, none of us would have a weight problem, would we? Weight loss can be such a struggle that we start thinking we have to do something drastic to see results

  • Despite the way it feels, losing weight isn’t a mysterious process. It’s a simple matter of burning more calories than you eat. But, if it were really that simple, none of us would have a weight problem, would we? Weight loss can be such a struggle that we start thinking we have to do something drastic to see results

  • Cradled in the peaceful hills above Santa Fe, New Mexico, Life Healing Center embodies the hope of recovery from emotional trauma, mental health disorders, addictions and the complex, very human problems that so many of us face. At Life Healing Center we understand how hard it can be to reach out for help and how important it is to find the right kind of care. Our treatment focus is on the specific, individual needs of each and every client, encouraging an individualized, comprehensive approach to recovery and emotional well-being.

  • Haloterapia sau Terapia cu sare are o istorie veche de secole. Conform traditiei ,calugari europeni isi frecau mainile cu pulberea de sare din pesteri,care ii alina pe bolnavi atunci cand o respirau.Terapia cu sare este folosita in diferite afectiuni cu mare succes.Haloterapia amelioreaza uimtor: astmul sever, afectiunile cail0r respiratorii,rinite,faringite ,otite,amigdalite,sinuzite,raceli,tuse, alergii (aceasta terapie este indicata si pentru copii),diferite probleme ale pielii,eczeme, dermatite ,psoriazisul,infectii virale,insomnia,anxietatea,refacerea sistemului imunitar.

  • Welcome to The Salt Room — Orlando’s most advanced salt therapy respiratory treatment center. Now for the first time you can control the symptoms, inflammation and discomfort of a variety of respiratory ailments in a sophisticated spa-like environment.

  • Learn to speak english free and fast

  • My material and sound files can not be used outside of this website without my written permission. These can not be part of any collection, and can not be displayed on other websites for any reason.

  • Great stuff from you, man. Ive read your stuff before and youre just too awesome. I love what youve got here, love what youre saying and the way you say it. You make it entertaining and you still manage to keep it smart.http://www.salina-hary.info I cant wait to read more from you. This is really a great blog.

  • Great stuff from you, man. Ive read your stuff before and youre just too awesome. I love what youve got here, love what youre saying and the way you say it. You make it entertaining and you still manage to keep it smart.http://www.salina-hary.info I cant wait to read more from you. This is really a great blog.

  • I’ve seen many blogs and I can certainly state that this is my favorite.

  • Get your website on the 1st page of Google by building high quality backlinks that will boost your Pagerank and your Search Engine Position!http://www.engleza-incepatori.com

  • This is a great post. Thanks for sharing this.

  • Welcome First time skipped here in your website, founde on ASK. Thanks for the fast response. Your information was very element and knowledgeable.

  • Engleza Online Get your website on the 1st page of Google by building high quality backlinks that will boost your Pagerank and your Search Engine Position!http://www.engleza-incepatori.com

  • Nice info. Great post, very useful indeed…

  • Im no professional, but I suppose you just crafted the best point. You certainly know what youre speaking about, and I can definitely get behind that. Engleza Thanks for staying so upfront and so sincere.http://www.optimizare-site-google.info

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sex og átta? Svar: