RSS

Færslur í flokknum: 'Viðskipti'

Þetta er kostuleg staða: Samfylkingin liggur lömuð í Evrópumálinu í ríkisstjórn, búin að aftengja og parkera þar þessu lykilstefnumáli, þegar allt hrópar þvert á móti á að Evrópustefna flokksins og forysta um það sé gerð gildari en nokkru sinni. Og frumkvæðið í Evrópumálunum er komið yfir til Framsóknarflokksins! Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar var ekki greypt í helgan [...]

Lesa meira »

Allir fjölmiðlar virðast nú hafa fundið stöngina sína í veiðiferðinni og eru farnir að kasta í strenginn á gráa svæðinu í Miðfjarðará. Einar Þorsteinsson fréttamaður Útvarps var með fína samantekt um málið í hádegisfréttum þar sem vitnað var í samtal við Stefán Hilmarsson fjármálastjóra Baugs frá því á miðvikudaginn í síðustu viku. Þar hafnaði Stefán [...]

Lesa meira »

Tvennt stendur uppúr, eða kannski niður úr, eftir lestur nýjustu útgáfu dagbókarbrota Matthíasar Johannessen, fyrrum Morgunblaðsritstjóra á netinu. Hið fyrra er ómæld heiftin í garð Ólafs Ragnars Grímssonar, sem enn virðist engan enda ætla að taka – nema ef vera skyldi einhver von til þess núna, þegar látið hefur verið laust um allt og alla [...]

Lesa meira »

Stærsta verkefni ríkisstjórnarinnar: nýskipan orkunýtingar í landinu í ramma framtíðarsáttar við umhverfið og ný tegund verðmætasköpunar í kjölfarið er um leið orðið stærsta tækifæri hennar til að vinna okkur út úr efnahagsþrengingunum. Ég nefndi eitthvað svipað fyrr í sumar. Nú glymur þessi klukka. Það er komin tíma á að skipta um stýrikerfi í efnahagsstjórninni og [...]

Lesa meira »

Fer ekki að koma tími á að símafyrirtækin endurskoði verðlagninguna á netnotkun með farsímum núna þegar flestir símar eru komnir með 3G möguleika? Ég skil ekki alveg hvernig þau ætla að hagnast á þessum möguleika ef þetta er svo dýrt að enginn nema sem á þotu notar það – nema þá í algjörri neyð. Mogginn [...]

Lesa meira »

Eftirtaldir félagar í stjórn Samtaka fjármálafyrirtækja fengu skilaboð frá formanni samtakanna, Halldór J. Kristjánssyni bankastjóra Landsbankans, rétt fyrir lokun markaða fimmtudaginn 19. júní, um að honum hefði borist til eyrna “að nú um fjögurleytið er von á yfirlýsingu frá ríkisstjórninni um aðgerðir á fasteigna- og fjármálamarkaði”: Guðmundur Hauksson hjá Spron, Helgi Bjarnason hjá Sjóvá Almennum [...]

Lesa meira »

Orkuveita Reykjavíkur montaði sig svolítið um daginn af þessari umfjöllun í Observer. Það er allt í lagi. Hún má það alveg.“Velgengni Orkuveitu Reykjavíkur er táknmynd fyrir almennan velfarnað Íslendinga: að nýta óblíð náttúruöflin og umbreyta þeim með hugviti og striti í öfluga og gjöfula orku,“ sagði Observer. Hárrétt. OR er glæsilegt fyrirtæki á heimsmælikvarða sem [...]

Lesa meira »

“Í samtali við Fréttablaðið segir Matthías að í raun eigi Salt Investments enga flugvél. Hins vegar leigi félagið stundum vélar sem hópur manna, sem tengdir séu félaginu viðskiptaböndum, hafi aðgang að… Hann segir marga fleiri á hrakhólum með flugvélar sínar á Reykjavíkurflugvelli.” Þeir eiga þá væntanlega ekki jeppana sína í raun heldur. Óborganlegt. Kannski Akurnesingar [...]

Lesa meira »

Meðan við dæsum og hrósum happi yfir að hafa sloppið fyrir horn undan hryðjuverkahópum fjármálamarkaðarins sem voru að murka lífið úr krónunni, þá litast menn erlendis yfir vígvöllinn og lyfta svolítið brúnum yfir frændsemisgreiða norrænu seðlabankanna í síðustu viku. Menn spyrja t.d. sem svo: Er þá norski seðlabankinn hættur að pönkast á íslensku krónunni? Brad [...]

Lesa meira »

Staðan er þessi eftir krísuna á fjármálamörkuðunum í vetur: Þrír af fjórum stærstu bönkum heims eru kínverskir.

Lesa meira »

« Eldri færslur - Nýrri færslur »