RSS

Færslur í flokknum: 'Viðskipti'

Hvern grunaði að Framsóknarflokkurinn skyldi verða kanarífuglinn í kolanámu íslenska flokkakerfisins? Atburðirnir á Framsóknarþinginu voru furðu beinskeytt svar við nokkrum standandi kröfum hins almenna kjósanda: Burt með spillinguna, sækjum um ESB og endurskoðum stjórnkerfið frá grunni. Nú er bara að sjá hvort þetta sterka meðal læknar sjúklinginn eða ríður honum að fullu. En niðurstaðan í [...]

Lesa meira »

Greining Stratfor, skuggaleyniþjónustunnar, á hápólitísku útspili Ólafs Ragnars á sendiherrafundinum er sennilega beint í mark. Það átti semsagt að framkalla kaldastríðshroll Vesturlanda, Norðurlanda og ESB gagnvart Rússum svo þessi ríki lánuðu okkur tugmilljarða gegn eigin betri pólitískri vitund, sem núorðið gengur oftar út á að þjóna hagmunum venjulegs fólks, heldur en uppskrúfaðri pólitískri leikjafræði nátttrölla. [...]

Lesa meira »

Hann verður forvitnilegri og forvitnilegri með hverjum deginum vorfundur forsætisráðherranna Geirs og Brown í Downingstræti 10 þann 24. apríl sl. eftir því sem útgáfunum fjölgar af því sem þeim fór í milli þar. Það virðist alveg sama hvaða umræðuefni er nefnt af fundinum (og reyndar af öðrum fundum og símafundum annarra ráðherra í þessum ríkisstjórnum) [...]

Lesa meira »

Það kemur í ljós mjög fljótlega hversu samþykkur Geir H. Haarde er þessari nálgun samstarfsráðherrans í ríkisstjórnarforystunni. Úttali hann sig ekki um seðlabankastjóraummæli Ingibjargar Sólrúnar fljótlega, segjum í kvöld, væru það glögg skilaboð um að þetta sé eins og Andrés gerir ráð fyrir: að Ingibjörg myndi varla gefa svona yfirlýsingu, nema ef hún teldi hægt [...]

Lesa meira »

Það væri bæði gagnlegt og sjálftsagt í stöðunni að stjórnvöld birtu nú þegar rennandi lista yfir skuldir, eignir og kröfur allra helstu eigenda bankaútrásarinnar svo almenningur geti áttað sig á helstu stærðum í þessu. Þetta er einn af mörgum bráðnauðsynlegum þáttum í því þjóðaruppgjöri sem við höfum verið neydd í – að fólk fái að [...]

Lesa meira »

Leið Davíðs var farin. Allar útlendu skuldirnar látnar falla. Og útlendingarnir fá bara 5-10% upp í kröfur sínar. Dalítið harkaleg leið sagði hann. En það er allt í lagi, þetta eru bara útlendingar. Í dag og á morgun og næstu daga sjáum við hversu harkaleg leið Davíðs er, leiðin, sem hann útlistaði svo sigri hrósandi [...]

Lesa meira »

Aldrei datt mér í hug að ég ætti eftir að skrifa þessa fyrirsögn. Blaðamaður Guardian bloggar um að innstreymi gjaldeyrisins úr veskjum erlendu blaðamannanna sem staddir eru á Íslandi sé nú það eina sem komi í veg fyrir algjört hrun efnahagslífsins.

Lesa meira »

Ég get alveg fallist á að það, eins og Árni Helgason framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðismanna bendir á, að það hefði varla gengið að láta þingið “malla fram eftir viku” um Glitnismálið. En varla hefði það samt verið ofverk Alþingis, virðingu sinnar vegna, að lyfta þó ekki væri nema síma um helgina og krefjast aðkomu viðskiptanefndar og [...]

Lesa meira »

Forsíðumynd Moggans í dag.

Lesa meira »

Nú sé ég eftir því að hafa verið svona upprifinn vegna sköruglegrar framgöngu Bandaríkjastjórnar í bankakrísu allra tíma og kannski ekki skrítið að tvær grímur hafi farið að renna á markaðinn í dag. Þar sjá menn fram á átök og þæfing um málið í þinginu eftir að smáatriðin komu í ljós. Og í svona eru [...]

Lesa meira »

Nýrri færslur »