RSS

Færslur í flokknum: 'Efnahagsmál'

Baldur McQueen útskýrir hér og hér, hvernig “yfirgripsmikið þekkingarleysi” hafi búið að baki upphrópunum Staksteina í Icesave málinu á fimmtudaginn. Nöturlegt að sjá hjá fjölmiðli, sem þarf að vera hægt að taka alvarlega a.m.k. í stærri málum, að þar sé núna vaðið svona hiklaust framhjá lykilstaðreyndum.

Lesa meira »

Þetta er dálítið ógnvekjandi. Þór Saari að lýsa röð sérfræðinga og hagsmunaaðila sem komu fyrir Efnahags- og skattanefnd þar sem verið var að ræða frumvarp fjármálaráðherra um eignaumsýslufélag ríkisins og ekki nema 15% þeirra virðast átta sig á hversu slæmt ástandið er! Um tuttugu manns komu fyrir nefndina og gáfu álit sitt á frumvarpinu, menn [...]

Lesa meira »

Guðmundur Steingrímsson átti jómfrúarræðu kvöldsins og mælti manna heilastur í stefnuræðuumræðunum: “Framsóknarmenn voru með slagorð: Árangur áfram, ekkert stopp. Hjá þessari ríkisstjórn er enginn árangur og allt stopp… Stefnan hjá henni virðist vera norður og niður, því miður.” Hann sagði að hugsanlega gæti fólk borgað skuldirnar. En það gerði þá ekkert annað á meðan. Veigamesta [...]

Lesa meira »

Þorgeir Eyjólfsson forstjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna sendi frá sér yfirlýsingu eftir fína umfjöllun Moggans um helgina um laskaða stöðu lífeyriskerfisins og fjárfestingastefnu og skrautlegar útrásarboðsferðir sem stjórnir og starfsmenn sjóðanna þáðu. Þorgeir gengst við 14 utanlandsferðum forstjóra og starfsmanna eignastýringar LV á árunum 2005 til og með 2008. Allt “kynnisferðir” og “flestar tveggja til þriggja daga [...]

Lesa meira »

Stórkostlegt hjá Agli Helgasyni, ofaná innflutninginn á Evu Joly, að fá bandaríska hagfræðinginn Nouriel Roubini til að koma til sín í Silfrið. Roubini fékk viðurnefnið Dr. Doom eftir að hann lýsti kreppunni og spáði (hárrétt) áhrifum hennar á fundi hagfræðinga hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum strax haustið 2006, og er kannski sá hagfræðingur sem er í mestum almennum [...]

Lesa meira »

Það verður endalaust spurt að þessu í kosningabaráttunni og þess vegna væri kannski hreinlegast að svara því strax: Það verður sótt um aðild að Evrópusambandinu nái Samfylkingin og Vinstri grænir meirihlutafylgi í kosningunum. Á landsfundi sínum hefðu Vinstri grænir getað lagt stein í götu tafarlausrar aðildarumsóknar og krafist  þjóðaratkvæðis um hvort aðildarumsókn yrði lögð fram. [...]

Lesa meira »

Það standa yfir kynslóðaskipti í íslenskri pólitík og þessi fjögur eru meðal þeirra sem erfa landið. Framtíðarleiðtogarnir Bjarni Benediktsson, Dagur B. Eggertsson, Svandís Svavarsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verða gestir mínir í Vikulokunum á Rás 1 á laugardaginn. Ég býst þess vegna við að meira verði horft til framtíðar í þættinum heldur en fortíðar. En [...]

Lesa meira »

Fólk keypti greinilega ekki meginskýringu Geirs H. Haarde á bankahruninu. Alþjóðlega lánsfjárkrísan lenti í 7. sæti blórabögglalistans. Könnun Miðlunar birtist í Viðskiptablaðinu í dag.

Lesa meira »

Í sprengidagsviðtalinu við Davíð var hún aftur lifandi komin, þessi megin brotalöm íslensks stjórnmálalífs sem átti svo skringilega stóran þátt í því að bankarnir náðu að teyma íslenskt efnahagslíf fram af hengifluginu. Þversögnin um manninn sem setti allt af stað, reyndi svo að standa gegn því og gerði svo allt sem hann gat til að [...]

Lesa meira »

Íslenskt flokkakerfi stendur enn fast gegn margra ára standandi réttlætiskröfu meirihluta almennings um ESB-aðildarviðræður. Virðir fólk ekki viðlits.

Lesa meira »

Nýrri færslur »