RSS

Færslur í flokknum: 'Bankahrunið'

Ærlegt uppgjör Þorgerðar Katrínar og brotthvarf Illuga skilar flokknum áleiðis í uppgjörinu við hrunið. Eitt stærsta málið í þessu er þó eftir: Uppgjörið við Davíð Oddsson. Það þarf að hefjast á því að viðurkenna sem reginmistök þá ákvörðun hans að setjast í stól seðlabankastjóra. Úr skýrslu Rannsóknarnefndarinnar: Hér hefur verið staðnæmst við atburði í aðdraganda að [...]

Lesa meira »

Að öðrum hrunbókum ólöstuðum er að mörgu leyti mestur fengur í magnaðri bók Styrmis Gunnarssonar sem kom út í dag: Umsátrið – Fall Íslands og endurreisn. Í henni er nálægð við persónur og kjarna atburðarásarinnar og dýpt í frásögninni sem hefur oft vantað í hinar bækurnar.Styrmir verður gestur í Vikulokaþættinum á laugardaginn.Sjónarhorn Styrmis er einstakt. [...]

Lesa meira »

Baldur McQueen útskýrir hér og hér, hvernig “yfirgripsmikið þekkingarleysi” hafi búið að baki upphrópunum Staksteina í Icesave málinu á fimmtudaginn. Nöturlegt að sjá hjá fjölmiðli, sem þarf að vera hægt að taka alvarlega a.m.k. í stærri málum, að þar sé núna vaðið svona hiklaust framhjá lykilstaðreyndum.

Lesa meira »

Ríkisstjórn Obama tókst (vonandi) að afstýra kreppunni miklu með því að dæla 700 milljörðum dollara til banka í vanda í vetur og bæta svo við 780 milljörðum dala í aðgerðir til að örva efnahagslífið. Þetta eru samtals næstum 1.500 milljarðar dala – alveg gígantískar fjárhæðir. Aðrar eins upphæðir höfðu ekki sést í bandarískri fjármálaumræðu. Bandarísku [...]

Lesa meira »

Það er alltaf eitthvað á Facebook. Brandari gærkvöldsins á mínu heimili var Pressufrásögn af færslu eiginkonu Ólafs Arnarsonar blaðamanns, Sólveigar Hreiðarsdóttur, um allnáin ættartengsl Ólafs við fyrrum toppa hjá Kaupþingi og Exista, Hreiðar Má Sigurðsson og Erlend Hjaltason. Sólveig vill meina að alltaf þegar þetta er nefnt sé það til að gera Óla tortryggilegan. Ég [...]

Lesa meira »

Hin fáránlega leynd

Við hljótum að ganga út frá því sem vísu að embætti sérstaks saksóknara sé á kafi að rannsaka málin, og þar með það sem lítur út fyrir að vera borðleggjandi markaðsmisnotkun í þessu Kaupþingsmáli. En allt fer þetta opinbera uppgjör fram með hraða snigilsins og með svo mikilli leynd og Kafka-hætti að jaðrar við fyrirlitningu [...]

Lesa meira »

Þetta er dálítið ógnvekjandi. Þór Saari að lýsa röð sérfræðinga og hagsmunaaðila sem komu fyrir Efnahags- og skattanefnd þar sem verið var að ræða frumvarp fjármálaráðherra um eignaumsýslufélag ríkisins og ekki nema 15% þeirra virðast átta sig á hversu slæmt ástandið er! Um tuttugu manns komu fyrir nefndina og gáfu álit sitt á frumvarpinu, menn [...]

Lesa meira »

Guðmundur Steingrímsson átti jómfrúarræðu kvöldsins og mælti manna heilastur í stefnuræðuumræðunum: “Framsóknarmenn voru með slagorð: Árangur áfram, ekkert stopp. Hjá þessari ríkisstjórn er enginn árangur og allt stopp… Stefnan hjá henni virðist vera norður og niður, því miður.” Hann sagði að hugsanlega gæti fólk borgað skuldirnar. En það gerði þá ekkert annað á meðan. Veigamesta [...]

Lesa meira »

Lögin sem settu 300 þúsund króna hámark á framlög til stjórnmálaflokka og milljón króna viðmiðunarþak á kostnað hvers frambjóðanda í prófkjöri, voru samþykkt á Alþingi 21. desember 2006 og tóku gildi þá um áramótin. Lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra. Nota bene, prófkjörsþakið tók ekki gildi fyrr en 1. júní 2007, [...]

Lesa meira »

Þorgeir Eyjólfsson forstjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna sendi frá sér yfirlýsingu eftir fína umfjöllun Moggans um helgina um laskaða stöðu lífeyriskerfisins og fjárfestingastefnu og skrautlegar útrásarboðsferðir sem stjórnir og starfsmenn sjóðanna þáðu. Þorgeir gengst við 14 utanlandsferðum forstjóra og starfsmanna eignastýringar LV á árunum 2005 til og með 2008. Allt “kynnisferðir” og “flestar tveggja til þriggja daga [...]

Lesa meira »

Nýrri færslur »