Uppgjörið við Davíð
18. 4. 2010 - 10:59 | Flokkur: Bankahrunið | 20 Ummæli
Ærlegt uppgjör Þorgerðar Katrínar og brotthvarf Illuga skilar flokknum áleiðis í uppgjörinu við hrunið.
Eitt stærsta málið í þessu er þó eftir: Uppgjörið við Davíð Oddsson. Það þarf að hefjast á því að viðurkenna sem reginmistök þá ákvörðun hans að setjast í stól seðlabankastjóra. Úr skýrslu Rannsóknarnefndarinnar:
Hér hefur verið staðnæmst við atburði í aðdraganda að falli bankanna sem eru til vitnis um það að fyrri stjórnmálaþátttaka formanns bankastjórnar Seðlabankans hafði bein áhrif á það hvernig ráðherrar brugðust við upplýsingum sem formaðurinn flutti fulltrúum ríkisstjórnarinnar um alvarlega stöðu sem komin var upp í málefnum íslensku bankanna. Þegar gætt er að mikilvægi þess að tryggja sjálfstæði Seðlabanka Íslands og áhrifamátt stefnumörkunar bankans um peningamálastjórn og aðra þætti efnahagsmála sem bankinn fer með verður það ekki talin æskileg skipan mála að í starf seðlabankastjóra veljist fyrrverandi stjórnmálamenn líkt og tíðkast hefur um árabil í Seðlabanka Íslands. Það er til þess fallið að vekja upp efasemdir um einurð þeirra við að vinna að lögbundnu markmiði bankans, einkum ef slíkt er í andstöðu við efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar eða framkvæmd tiltekinna kosningaloforða. Þá er hætt við að tillögur slíks seðlabankastjóra verði, með réttu eða röngu, settar í ákveðið pólitískt samhengi sem þarf ekki á neinn hátt að endurspegla forsendur slíkra tillagna sem settar eru fram á grundvelli lögbundins hlutverks Seðlabanka Íslands. Síðast en ekki síst er slík aðstaða til þess fallin að rýra trúverðugleika Seðlabankans.

Hallgrímur Thorsteinsson
‘þá ákvörðun Davíðs Oddssonar að setjast í stól Seðlabankastjóra’ – Athyglisvert orðalag en sannleikanum samkvæmt og ein aðalorsök þeirrar stöðu sem við erum í: klíka og sjálftaka.
Ég var nú á flokksráðsfundinum og ég held að uppgjörið við Davíð sé nú þegar hafið.
Með því að lýsa yfir ábyrgða á jafn hreinskilinn og einlægan hátt og gert var í gær er í raun verið að lýsa því yfir, sem þú talar réttilega um að hafi verið “reginmistök”.
Það verður ekkert uppgjör innan Sjálfstæðisflokksins við Davíð, enda er það fyrirfram tapað.
Hefjast?
Á uppgjörið við þátt Davíðs í hruninu að hefjast á því að hann varð seðlabankastjóri?
Hvað með stjórnmálamanninn Davíð?
Þennan sem einkaVINAvæddi bankana?
Þennan sem lagði niður ÞJóðhagsstofnun?
Þennan sem jók þensluna þrátt fyrir varnaðarorð?
Þennan sem studdi stríðið við Írak?
Þennan sem kom dómstólunum í hendur vina og gæðinga?
Þennan sem alltaf fór sínu fram, hvað sem tautaði og raulaði og í trássi við allt og alla og endaði svo á að skipa sjálfan sig seðlabankastjóra?
Æi svei mér þá, held það þurfi ekkert uppgjör við Davíð, manninn Davíð. Með þessu áframhaldi náum við aldrei lengra en nef okkar nær. Það þarf uppgjör við þær leikreglur sem t.d. leyfðu Davíð og fleirum að setjast í þennan stól. Við þurfum nýjar leikreglur, mótaðar í ljósi þeirra sem brugðust. Við þurfum framtíðarsýn, svo ég taki undir orð Gunnars Smára í úbattinu núna.
Áhrifavald Davíðs innan Sjálfstæðisflokksins gríðarlegt, eins og best kom fram á síðasta landsfundi. Með Moggann að vopni mun hann halda áhrifum sínum enda mun enginn áhrifamaður innan Sjálfstæðisflokksins taka þá áhættu fara alvarlega gegn skoðunum Davíðs. Viðsnúningur Illuga og Bjarna í ESB málinu á sínum tíma er bara eitt dæmi af mörgum.
Undarlegt hvað sumir blaðamenn eru enn með Davíð Oddsson á heilanum.
Enn einn RÚV starfsmaður, borgaður af mér, að klóra í Sjálfstæðisflokkinn.
Skylda blaðamannsins er fyrst og fremst að leita eftir sannleikanum, Kalli. Annars er hann ekki að sinna starfi sínu.
Það er annað uppgjör sem ekki verður minna spennandi. Það er uppgjör Davíðs og Moggans við hina nýju andstæðinga, td rannsóknarnefnd alþingis, ýmsa fyrrum samstarfsmenn í seðlabankanum sem gáfu skýrslu, ofl.
Vissulega er það hlutverk fréttamanns að leita sannleikans. Á miðvikudaginn, játaði Össur því í ræðustól á Alþingi, að líklega megi rekja andstöðu Samfylkingar við fjölmiðlafrumvarpið, til tengsla flokksins við Baug. Hvert leituðu fréttamenn þá sannleikans, jú þeir hringdu í Ingibjörgu Sólrúnu, sem að sjálfssögðu neitaði öllum tengslum flokksins við Baug. Þar með lauk þeirri sannleiksleit fjölmiðlamanna.
Það er í rauninni sorglegt, sé litið til hlutverks fjölmiðla í umræðunni, hvað varðar skoðanamyndanir fólks, þá hafa þeir engin viðbrögð sýnt í átt til betrunnar, þrátt fyrir þær ákúrur sem þeir fá frá siðgæðisnefndinni.
Hallgrímur þú ert haldinn heilkennum og búinn að vera lengi,átt að vera hlutlaus þáttasjórnandi RUV, en það ertu ekki,vandamálið var að Sjálfstæðisflokkur var í sjórn með Samfylkingu sem vildi halda fyrirtækjum á landinu það mátti ekki stugga við þeim,enginn varaði meira við þessu en Davíð
KKB: Það er ekkert betra að kasta því fram að Samfylkingin hefi eitthvað sérstakt samband við Baug ef enginn fótur er fyrir því
Í hverju fólst þetta” ærlega” uppgjör?? Þeim var einfaldlega fórnað fyrir flokkinn.
Ég kastaði því ekki fram, heldur spurði einhvern Össur í þinginu út í það hvort andstaða Samfylkingarinnar við fjölmiðlalögin hefði eitthvað með þessi tengsl að gera. Ef að maður eins og Össur, sem hefur frá stofnun Samfylkingarinnar verið þar í forystusveit, segir að slíkt hafi verið hugsanlegt, þá hljóta menn að þurfa að kanna málið betur en að gefast upp við fyrsta nei.
RUV starfsmennirnir klikka ekki frekar en fyrri daginn í að klína öllu á Davíð Oddsson. Egill og Hallgrímur eru enn í sandkassaleiknum.
Af hverju spyrja þessir menn ekki um ummæli Össurar í síðustu viku um að andstaða Samfylkingar við fjölmiðlafrumvarp DO var eingöngu vegna tengsla flokksins við Baug. Þetta eru stórfréttir, og eftir að skýrslan kemur út!!!
hvað með þá staðreynd að formaður samfylkingar reyndi að verja Björgvin G. öllum ásökunum, sagði hann ekkert hafa gert af sér, og hann væri þegar búinn að axla næga ábyrgð með því að segja af sér einhverju “súkkulaðikleinu” embætti innan flokksins. viku síðar er hann búinn að segja af sér sem þingmaður. Hvar skilur þetta formann flokksins þá eftir? Var hún að hafa rangt við varðandi björgvin?
Hvað með tengsl FME og samfylkingar, tengsl Seðlabanka og Samfylkingar, tengsl Baugs og samfylkingar (baugsfjölskyldan skuldar rúma 300 milljarða prívat og persónulega!!!)
hvað með þá staðreynd að alveg síðan 2004 hefur ISG reynt að verja baug með kjafti og klóm. Flokksdindlar samfó hafa unnið á fréttastofum baugsmiðlana o.s.frv.
Þetta þykja starfsmönnum RUV ekki fréttir. Þeir komast ekkert lengra en að DO. Þessir RUV menn þurfa ekkert að óttast. DO mun svara fyrir sig, hann hefur ólíkt mörgum öðrum ekki talað í tæpt ár. Engu að síður er hann enn sá stjórnmálamaður sem fólk treystir helst til að koma Íslandi úr kreppunni, sbr. nýlega könnun sem virðist hafa verið þöguð í hel. Hvernig skyldi standa á því?
markilegt hvað þessir þáttastjórnendur á RÚV eru pólitískir geta ekki stillt sig um að kasta skít í aðra þegar þeir eru ekki í vinnunni. Annars er hallgrímur oft ágætis útvarpsmaður til að hlusta á þó full oft skíni í gagn að hann sé í Samfylkingunni. Annars verð ég að segja að í hvert sinn sem ég heyri í Hallgrími, sem eins og fyrr segir er áheyrilegur útvrpsmaður, þá dettur mér í hug atvik af gömlu Bylgjunni þegar ISG kom í heimsókn og Hallgrímur var svo spenntur og síðan fullur af lotningu og undirgefni að samstarfsfólkið þóttist sjá að hann hafi pissað undir þegar ISG kom inn til okkar og heilsaði Hallgrími.
Alveg týpískt fyrir blessaða sjálfstæðismennina okkar að agnúast út í skoðanir blaðamanns á hans eigin prívat bloggsíðu…..
Síðast þegar ég gáði var ekki búið að banna fólki að hafa skoðanir hér á landi, alveg sama við hvað það starfar.
Athyglisverð vanstilling í gangi hér og fáir að ræða atriðið sem varpað er fram. Ef á að ræða skýrsluna svona býð ég ekki í það.
Þessi vanstilling er tilkominn vegna þess að helstu aðdáendur náhirðarinnar þola hreinlega ekki að foringi þeirra er gagnrýndur. Það bara má ekki. Jafnvel þótt hann sé helsti arkitekt hrunsins eins og skýrslan sannanlega mælir um.
Ég efast stórlega um það að Sjálfstæðismenn geti gert upp Davíðs-tímabilið, enda er það kannski ekki einu sinni liðið. T.d. hvers vegna var honum ekki svarað ærlega á flokksfundinum fyrir ári, frekar en að klappa, þar sem allir sem það gerðu voru hræddir við hann. Alveg hræðilegt.