RSS

Færslur fyrir mars, 2009

Þorgeir Eyjólfsson forstjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna sendi frá sér yfirlýsingu eftir fína umfjöllun Moggans um helgina um laskaða stöðu lífeyriskerfisins og fjárfestingastefnu og skrautlegar útrásarboðsferðir sem stjórnir og starfsmenn sjóðanna þáðu. Þorgeir gengst við 14 utanlandsferðum forstjóra og starfsmanna eignastýringar LV á árunum 2005 til og með 2008. Allt “kynnisferðir” og “flestar tveggja til þriggja daga [...]

Lesa meira »

Stórkostlegt hjá Agli Helgasyni, ofaná innflutninginn á Evu Joly, að fá bandaríska hagfræðinginn Nouriel Roubini til að koma til sín í Silfrið. Roubini fékk viðurnefnið Dr. Doom eftir að hann lýsti kreppunni og spáði (hárrétt) áhrifum hennar á fundi hagfræðinga hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum strax haustið 2006, og er kannski sá hagfræðingur sem er í mestum almennum [...]

Lesa meira »

Það verður endalaust spurt að þessu í kosningabaráttunni og þess vegna væri kannski hreinlegast að svara því strax: Það verður sótt um aðild að Evrópusambandinu nái Samfylkingin og Vinstri grænir meirihlutafylgi í kosningunum. Á landsfundi sínum hefðu Vinstri grænir getað lagt stein í götu tafarlausrar aðildarumsóknar og krafist  þjóðaratkvæðis um hvort aðildarumsókn yrði lögð fram. [...]

Lesa meira »

Það segir hvergi hver seðlabankastjóranna þriggja er höfundur kolsvörtu febrúar-skýrslunnar sem RÚV fékk loksins birta í dag. Skiptir kannski ekki öllu máli, nema þá helst fyrir þá sök að maður veit þá ekki hver þeirra virtist ekki á þessum tímapunkti vera búinn að átta sig á óstöðugleika-áhrifum Icesave-reikninganna (sem er vitlaust stafað í textanum: Icesafe).  [...]

Lesa meira »

Mættir. Flugu hingað á almennu farrými og ekki í leit að skattaskjóli. Það stendur ekkert í vegi fyrir opnum tjöldum og vorið stendur skrifað á þá svart á hvítu og rauðnefjað. Ég sá hópinn úti á Álftanesi í morgun. Á þessarri síðu um farfuglakomur eru fréttir dagsins líka þær að skógarþrestirnir eru komnir til landsins. [...]

Lesa meira »

Það hlýtur að vera hægt að búa til stjórnarskrá í fullum gæðum án þess að 41 fulltrúi almennings þurfi að sinna því í fullu starfi á fullu þingmanna-kaupi allan þann tíma sem það á að taka, hvort sem það eru 10 mánuðir, 18 eða 24. Launakostnaður á mánuði per fulltrúa í áætlun fjármálaráðuneytisins er kr. [...]

Lesa meira »

Ég er með þetta undurfallega ádeilulag Joni Mitchell af For the Roses frá 1973 á heilanum, í bílnum, alls staðar, þessa dagana. Enda lykilspurningin í matarveislunni núna sú sama og þá: Hver hleypti hinum gráðugu inn og skildi hina þurfandi eftir úti? Who let the greedy in And who left the needy out Who made [...]

Lesa meira »

Gaman að sjá þetta. Björgvin Valur hættir ekki að vera venjuleg manneskja þó hann fari í framboð. Hann breytist ekki alveg í homo politicus eins og margir. Prik austur! Og talandi um manneskjur og netið. Mikið væri ég feginn ef okkar ágætu nýju vefmiðlar tækju sig taki til að falla ekki ofaní þann fúla drullupytt [...]

Lesa meira »

Það standa yfir kynslóðaskipti í íslenskri pólitík og þessi fjögur eru meðal þeirra sem erfa landið. Framtíðarleiðtogarnir Bjarni Benediktsson, Dagur B. Eggertsson, Svandís Svavarsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verða gestir mínir í Vikulokunum á Rás 1 á laugardaginn. Ég býst þess vegna við að meira verði horft til framtíðar í þættinum heldur en fortíðar. En [...]

Lesa meira »

Fólk keypti greinilega ekki meginskýringu Geirs H. Haarde á bankahruninu. Alþjóðlega lánsfjárkrísan lenti í 7. sæti blórabögglalistans. Könnun Miðlunar birtist í Viðskiptablaðinu í dag.

Lesa meira »

Nýrri færslur »