Pólitískt upplegg Icesave málsins
13. 11. 2008 - 00:00 | Flokkur: Bankahrunið, Efnahagsmál, ESB aðild, Stjórnmál, Viðskipti | 2 Ummæli
Greining Stratfor, skuggaleyniþjónustunnar, á hápólitísku útspili Ólafs Ragnars á sendiherrafundinum er sennilega beint í mark. Það átti semsagt að framkalla kaldastríðshroll Vesturlanda, Norðurlanda og ESB gagnvart Rússum svo þessi ríki lánuðu okkur tugmilljarða gegn eigin betri pólitískri vitund, sem núorðið gengur oftar út á að þjóna hagmunum venjulegs fólks, heldur en uppskrúfaðri pólitískri leikjafræði nátttrölla.
En þetta varpar líka ljósi á ótímabæra yfirlýsingu Davíðs um Rússalánið um daginn. Var allt þetta Rússalánsmál og þarmeð líka tónninn sem sleginn var í öllu heila IMF málinu í þessum sama dúr?
Varð einhver 40 ára gömul kaldastríðsnálgun strax allsráðandi í Icesave-málinu í stað þess að leggjast af einlægni yfir það með vinaþjóðum, tryggja liðveislu norrænu þjóðanna í grunninn og opna strax á lausn sem byggði á sennilegri inngöngu í ESB, eins og Kristján Vigfússon bendir á?
Er ekki nóg að það sé búið að gera Ísland að efnahagslegum útlaga Evrópu um ókomin ár þó við förum ekki að verða það pólitískt líka?
Hallgrímur Thorsteinsson
þetta var það allra fyrsta sem mér datt í hug þegar Geir tilkynnti að við værum að leita að láni frá Rússum fyrir rúmum mánuði, og skoðun mín í þá átt styrktist eftir því sem leið á það ferli. mér finnst það einmitt þessvegna svo forpokað af Ólafi að reyna að endurtaka þessa manipúlasjón sem gekk ekki upp í fyrstu umferð. þetta er bara til marks um hugvit forystu þjóðarinnar, hvort sem er ráðherra eða forseta….
Þetta er farið að varða þjóðaröryggi að koma þessu fólki frá.