Lista upp á borðið
13. 10. 2008 - 10:58 | Flokkur: Efnahagsmál, Stjórnmál, Upplýsingatækni, Viðskipti | 4 Ummæli
Það væri bæði gagnlegt og sjálftsagt í stöðunni að stjórnvöld birtu nú þegar rennandi lista yfir skuldir, eignir og kröfur allra helstu eigenda bankaútrásarinnar svo almenningur geti áttað sig á helstu stærðum í þessu.
Þetta er einn af mörgum bráðnauðsynlegum þáttum í því þjóðaruppgjöri sem við höfum verið neydd í – að fólk fái að fylgjast með. Það þarf ekki að vera mjög flókið.
Upp á borðið með þetta, því fyrr því betra.
Hallgrímur Thorsteinsson
Innilega sammála. Betra að vita en ekki, þótt ljótt sé.
Og svo mætti alveg birta lista yfir hverjir hafa stutt hvaða flokka og hve mikið. Fínt að hafa það til samanburðar í endurreisninni.
Rétt hjá þér Hallgrímur – því fyrr því betra.
Ég er orðin hundleið á þessu blaðri sem ráðamenn halda að okkur núna – að það eigi að þegja um sökudólgana þar til um hægist. Það þarf að frysta eigur þessara skúrka á stundinni og þær látnar renna upp í skuldirnar sem blasir við að þjóðin þarf að greiða.
Thetta verdur ahugavert i ljosi vidtals vid Sigurjon Arnason hja Sindra adan.
Vonandi hefur Sigurjon rett fyrir ser um eignirnar.En samkvaemt venjulegum reikningsreglum tha var hann ekki ad fara med rett mal. En hver sagdi ad vid, venjulegt folk,kynnum ad reikna rett.