Tvöfaldur frídagur samdægurs
Flokkur: Tilveran | 30. apríl, 2008 Rita ummæli »
Það er alltaf best að taka bara einn dag í einu. Ég sé bara ekki alveg hvernig það er hægt á morgun.
Flokkur: Tilveran | 30. apríl, 2008 Rita ummæli »
Það er alltaf best að taka bara einn dag í einu. Ég sé bara ekki alveg hvernig það er hægt á morgun.
Flokkur: ESB aðild, Stjórnmál | 27. apríl, 2008 2 ummæli »
Hún var nokkuð mikilsverð þessi árétting Ingibjargar Sólrúnar í Silfrinu í dag um hvað raunverulega segir og segir ekki um hugsanlega Evrópusambandsaðild Íslands í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ingibjörg undirstrikaði nefnilega að í henni er einmitt ekki tekið fram að Ísland muni ekki sækja um aðild á kjörtímabilinu, öfugt við t.d. gildandi stjórnarsáttmála í Noregi, þar sem [...]
Flokkur: ESB aðild, Stjórnmál | 25. apríl, 2008 3 ummæli »
Nú er Geir Haarde búinn að útskýra hvernig Downingstræti 10 tókst að klúðra fréttatilkynningunni. “Þetta var einhver misskilningur hjá þeim, það var ekki minnst á þessi mál, ekki minnst á hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Við vorum að tala um allt aðra hluti og það sem þarna er vikið að svokölluðum strategískum viðræðum háttsettra embættismanna [...]
Flokkur: ESB aðild, Stjórnmál | 25. apríl, 2008 1 ummæli »
Spuni út yfir mörk hins fáránlega af hálfu Downingstrætis 10? Það eru engin nýmæli sbr. Írak. Hingað til hefur þó alltaf einhver tilgangur verið með spunanum, yfirleitt sá að réttlæta eða fegra eigin gerðir. Þess vegna er það með nokkrum ólíkindum að breska forsætisráðherraskrifstofan taki nú upp á því án sýnilegs tilgangs að senda frá [...]
Flokkur: Efnahagsmál, ESB aðild, Stjórnmál, Viðskipti | 24. apríl, 2008 Rita ummæli »
Ferlega hlýtur hún að vera orðin óþægileg þessi staða sem stjórnmálamenn sem eru á móti Evrópusambandsaðild og þar með upptöku evru eru búnir að koma sér í núna. Það getur ekki verið mjög gott fyrir sálina til lengdar að þurfa alltaf að vera að segja fólki sem veit betur að það verði að gera sér [...]
Flokkur: Fjölmiðlar, Orkumál, Stjórnmál | 19. apríl, 2008 2 ummæli »
Hérna er þetta óborganlega Kastljóssviðtal frá því á fimmtudag þar sem Ólafur F lætur það sem við hin köllum raunveruleika lönd og leið: “Það segir klárlega í niðurstöðum stýrihópsins um REI að REI skuli vera 100 prósent í eigu almennings” en samt sé það “ekki útilokað samkvæmt niðurstöðu stýrihópsins að það mætti hugsanlega selja REI”. [...]
Flokkur: Orkumál, Stjórnmál | 17. apríl, 2008 2 ummæli »
Smá upprifjun úr lokaskýrslu stýrihóps borgarráðs um málefni REI og Orkuveitu Reykjavíkur frá 6. feb. 2008: –Stýrihópurinn telur eðlilegt að REI verði áfram rekið með það hlutverk að sinna þróunar- og fjárfestingarverkefnum á erlendri grund og það verði 100% í eigu OR. REI taki þátt í verkefnum erlendis eitt sér eða með öðrum samkvæmt ákvörðun [...]
Flokkur: Óflokkað | 14. apríl, 2008 2 ummæli »
Samkomulag við Nýfundnaland (og Labrador) í dag um “…greiningu á sameiginlegum hagsmunum” o.fl. vekur einhver ónotaleg hugrenningatengsl. Nýfundnaland missti sjálfstæði sitt á kreppuárunum 1933-34 þegar landið varð gjaldþrota. Ríkissjóður fór á hausinn. Áður hafði það jafnstöðu við Kanada sem ríki í breska heimsveldinu.
Flokkur: Óflokkað | 10. apríl, 2008 9 ummæli »
Hæstu stýrivextir í heimi og Davíð kominn í opinbera andstöðu við ráðamenn þjóðarinnar – segir að Seðlabankinn sé ekki á leiðinni til að fá lánaða peninga fyrir bankana líkt og ráðamenn þjóðarinnar vilji enda telji Seðlabankinn að bankarnir séu það vel staddir. Í alvöru talað, það verður sífellt erfiðara að verjast þeirri hugsun að þetta [...]
Flokkur: Óflokkað | 9. apríl, 2008 2 ummæli »
Sagan af drukknu sjóðsstjórunum á 101 Bar í boði Bear Stearns í grenjandi samsæri gegn Íslandi flýgur hratt og víða. Paul Krugman á New York Times fylgist með. Þessi frétt Davids Ibisons blaðamannas FT í Stokkhólmi – sem mér sýnist nú vera staddur í Reykjavík – er óborganleg og kannski meira virði en samanlagðar yfirlýsingar [...]