Flokkur: Viðskipti | 26. desember, 2007 1 ummæli »
Ég veit ekki alveg með þennan Ambrose Evans-Pritchard, ristjóra alþjóðaviðskipta hjá Daily Telegraph (hann heldur því t.d. fram að Clinton hjónin séu morðingjar og að Oklahoma- sprengjan hafi verið FBI-plot), eða hvort grein hans frá því á Þorláksmessu um ískyggilega stöðu á alþjóða fjármálamörkuðum hafi almennt haldið vöku fyrir fjármálaspekingum heims um jólin… Nema hann [...]
Lesa meira »
Flokkur: Óflokkað | 24. desember, 2007 Rita ummæli »
Hann var glaðbeittur þessi jólamáni þar sem hann gægðist yfir Esjuna á Þorláksmessu, svona eins og til að óska sólinni til hamingju með nýjan uppgang. Ég var á Arnarneshæðinni á leiðinni að kaupa svínalærið og smellti af með símanum. Gleðileg jól!
Lesa meira »
Flokkur: Stjórnmál | 21. desember, 2007 Rita ummæli »
Verst að Árni er ekki búinn að samþykkja þá, því þetta hefði verið ljómandi tækifæri fyrir Björn að testa nýju 10 milljón króna óeirðabílana sína: Setja eins og einn fyrir framan dómsmálaráðuneytið og annan utan við fjármálaráðuneytið, svona til öryggis. Davíð hefði líka getað dáðst að þeim út um gluggan hjá sér.
Lesa meira »
Flokkur: Stjórnmál | 13. desember, 2007 1 ummæli »
Á Ítalíu blasir fegurðin ein við hvert sem litið er og allir eru sammála um að fólkið þar hafi fyrir löngu náð alveg sérstökum tökum á listinni að lifa lífinu ljúflega, La Dolce Vita. En hvernig í ósköpunum stendur þá á því að á Ítalíu skuli nú búa óhamingjusamasta þjóð Vestur Evrópu, samkvæmt nýrri könnun? [...]
Lesa meira »
Flokkur: Tónlist | 11. desember, 2007 6 ummæli »
Tuttugu milljónir manna um allan heim reyndu að kaupa miða á Led Zeppelin góðgerðarónleikana í London í gærkvöldi en aðeins 20 þúsundum tókst það. Og þeir heppnu uppskáru hápunkt á ævinni eins og við Sigurjón og Stebbi Kristmannssynir, Jói Sveinbjörns og Gulla, sem lögðum okkur í lífshættu til að ná tímanlega í röðina í miðasölunni [...]
Lesa meira »