• Forsíða
  • HT

Hallgrímur Thorst

færslur úr Garðabæ

RSS

Nýtt og endurbætt Alþingi

29. 11. 2007 - 13:27 | Flokkur: Stjórnmál | 4 Ummæli

Týpískt. Loksins þegar á að gera langþráða bragarbót á starfsemi Alþingis sem hefur drabbast í skugga framkvæmdavalsins í áraraðir þá andmæla menn í röðum. Það er horft í 470 milljóna króna aukningu á framlögum til þingsins 2008 án þess að gá að því að 250 milljónir af því, meira en helmingurinn, er út af viðgerðum á húsinu Skjaldbreið.

Það eru semsagt settar 220 milljónir í bætt vinnubrögð í aðalstoð lýðræðisins. Er það mikið fyrir breytingar sem ættu að geta skilað milljörðum í bættri lagasetningu og aðhaldi við mistækt framkvæmdavald?

Ég hef nú samt ákveðna samúð með ræðuskörungum Vinstri grænna. Eftir breytingarnar á þingsköpunum verður aldrei aftur hægt að mæla ræðutíma þingmanna í heilum hjörlum. Mætti ekki alveg, þó það væri bara þeirra vegna, hafa heimild til afbrigða á tímamörkum í stærri málum? T.d. þegar farið verður að ræða inngönguna í ESB.

En hvernig er ekki hægt að fagna: Lengdum starfstíma Alþingis, efldu eftirlitshlutverki þingsins gagnvart framkvæmdavaldinu, öflugri þingnefndum með auknu starfsliði, aðstoðarmönnum fyrir formenn stjórnarndstöðuflokka og afnámi næturfunda?

Samt vantar ennþá opnar vitnaleiðslur hjá nefndunum.



4 ummæli

  1. 29.11 2007 kl. 14:201    Magnús Þór Hafsteinsson

    Það var mikið að maður sá vitræna bloggfærslu um þetta mál. En svo sem ekki í fyrsta sinn sem þú mælir af skynsemi Hallgrímur. Takk.


  2. 29.11 2007 kl. 16:502    Friðjón og bláu appelsínurnar » Um alþingisfrumvarp Sturlu Böðvarssonar

    [...] og ég stend í þeim skrítnu sporum að verja aukin ríkisútgjöld og vera í liði með Hallgrími Thorsteinssyni, nokkuð sem ég er ekki [...]


  3. 30.11 2007 kl. 18:263    Sigurður Viktor Úlfarsson

    Fullkomlega sammála. Tel reyndar að á meðan ráðherrar eru á þingi þá geti þingið aldrei haft sómasamlegt eftirlit með framkvæmdavaldinu. Meðan flokksformenn sitja báðum megin við þá stjórna þeir dæminu þar sem það eru þeir sem dæma lifendur og dauða í pólitíkinni innan hvers flokks fyrir sig.


  4. 5.6 2009 kl. 19:234    Um alþingisfrumvarp Sturlu Böðvarssonar | Friðjón R. Friðjónsson

    [...] og ég stend í þeim skrítnu sporum að verja aukin ríkisútgjöld og vera í liði með Hallgrími Thorsteinssyni, nokkuð sem ég er ekki [...]


Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fimm og sex? Svar:

  • Höfundur

      Hallgrímur Thorsteinsson
      Nánar um höfund ...

  • Nýlegar færslur

    • Uppgjörið við Davíð
    • Jökulbræðslan á Fimmvörðuhálsi
    • Nýr snúningur á Icesave söguþráð
    • Geithner, Davíð og koss dauðans
    • Heiðríkjan horfin?
  • Tenglar

    • Andrés
    • Andrés hinn
    • Arna
    • Baldur McQueen
    • Björn Bjarnason
    • Björn Ingi
    • Egill
    • Eyjan
    • Grímur
    • Guðmundur
    • Helga Vala
    • Juan Cole
    • Nokkur fjármálablogg
    • Össur
    • Pétur
    • Pétur Jónsson
    • Pétur Tyrfings
    • TPM
  • Færslusafn

    • apríl 2010
    • mars 2010
    • febrúar 2010
    • nóvember 2009
    • október 2009
    • ágúst 2009
    • júní 2009
    • maí 2009
    • apríl 2009
    • mars 2009
    • febrúar 2009
    • janúar 2009
    • desember 2008
    • nóvember 2008
    • október 2008
    • september 2008
    • ágúst 2008
    • júlí 2008
    • júní 2008
    • maí 2008
    • apríl 2008
    • mars 2008
    • febrúar 2008
    • janúar 2008
    • desember 2007
    • nóvember 2007
    • október 2007
    • september 2007

Hönnun: MistyLook eftir Sadish.


  • eyjan.is

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Viðskipti
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Innskráning