Færslur fyrir
Hver stjórnar
Það að íslensk vinstri stjórn með stórhuga áætlanir varð að smjöri í höndum fjármálavaldsins er ekki einstakur atburður, mun frekar endurtekin saga. Slíkt hefur gerst í öðrum löndum margsinnis. Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar gefur góða lýsingu á þessum raunveruleika í viðtali sem er sagt frá í Speglinum. Þar segir hann að hópur valdamestu manna innan [...]
Fyrsta maí gangan
Er að hlusta á útvarpsþátt frá 1958 þar sem Sigurður Magnússon rifjar upp fyrstu fyrsta Maí gönguna 35 árum áður. Í raun hefur ekki svo mikið breyst, sömu kröfur og sama umtal. Mogginn taldi 40 kröfumenn en Alþýðublaðið 5000, aðallega vegna þess að þeir töldu konur og börn með en Mogginn ekki. Konur vildu sömu [...]
Bakþankar
Var að hugsa um að blogga eina sjálfhverfa besservissera bloggfærslu, svona eina óþolandi. Þegar ég segi fjórflokkinn þá er Björt Framtíð inní því mengi því ég tel hana bara vera skúffu fyrir óánægða Samfylkingarmenn. Kosningaúrslitin núna eru sigur fortíðarinnar og ósigur nýju smáflokkanna. Reyndar sluppu Píratar inn fyrir girðingu og var það vel. Píratar nutu [...]
Hvers vegna heldur fjórflokkurinn völdum
Samkvæmt skoðanakönnunum þá stefnir í að fjórflokkurinn haldi sínum völdum. Við getum þar með sagt að Búsáhaldarbyltingunni sé lokið. Reyndar er hugsanlegt að Vinstri grænir fylli Austurvöll að nýju ef D og B mynda næstu ríkisstjórn. Það virðist fara þeim best að öskra á auðvaldið utan girðingar en að hjóla í það á Alþingi. Dögun [...]
Velferð fyrir fjármagn eða fólk
Uppboð á heimilum fólks er algengt á Íslandi í dag, um 3 á dag að meðaltali. Þetta er gert til að tryggja endurheimtur fjármagns fjármagnseigenda. Afleiðingarnar eru skelfilegar fyrir viðkomandi fjölskyldur. Þetta er ekki velferð í verki. Þetta ætlar Dögun að stöðva. Á öðrum vettvangi eru fjármagnseigendur að reyna að hámarka fé sitt og er [...]
Að horfast í augu við staðreyndir
Fyrir stafni í íslenskri pólitík eru mörg vandamál og þau eru rædd en á einhvern hátt á almenningur erfitt með að ná alvarleikanum. Sennilega er of mikið suð í umræðunni. Það kom fram í skýrslu Seðlabanka Íslands í mars að við munum ekki getað staðið í skilum með afborganir af lánum Íslands á næstu árum. [...]
Hvað viltu
Það eru margir í nettu áfalli yfir því að það virðist stefna í valdatöku Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna eftir kosningar. Þeir hafa hingað til staðið með þeim öflum í þjóðfélaginu sem stjórna í valdi auðs. Hjá þeirri valdastétt verða hagsmunir almennings oftast afgangsstærð. Sjálfstæðisflokkurinn er víst bara reynslunni ríkari en annars óbreyttur. Þar með getum við [...]
Að láta Ísland sigla sinn sjó
Kjósendur hafa mismunandi ástæður fyrir því að kjósa þennan eða hinn flokkinn. Sumir eru vinstri menn og leggja áherslu á að velferðakerfið gefi öllum sem líkust kjör til að þroskast og dafna. Aðrir eru hægri menn og vilja frelsi einstaklingsins til að græða á daginn og.. Jafnvel eru til menn sem trúa því að það [...]
X-T
Almenningur er grálúsugur eftir samveru sína við fjórflokkinn á liðnum kjörtímabilum. Öllu má svo sem venjast og þótti kannski ekki tiltökumál í gamla daga. Við ættum þó að þekkja hann af verkum sínum og það ætti að leiða okkur að öðrum valmöguleikum. Tel að fólk eigi að kjósa T núna í kosningunum en forðast gamla [...]
Pendúllinn
Núna sveiflast pendúllinn til baka hjá íslenskum kjósendum. Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkurinn virðast ætla að sitja í næstu ríkisstjórn. Sjálfsagt ýmsar skýringar á því en ég verð þó að kvarta yfir skorti á sögulegu samhengi. Það var þetta með vín á gamla belgi; ”Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi, því þá sprengir vínið belgina, [...]
Gunnar Skúli Ármannsson