Ég verð aðeins að leggja nokkur orð í belg í umræðuna um listamannalaun. Sér í lagi eftir að þingmaðurinn Þráin Bertelsson framdi pólitískt harakíri þegar hann kallar um 5% þjóðarinnar fábjána, sem er auðvitað alveg einstaklega hrokafullt af hálfu Þráins og verður hann að passa sig hvernig ávarpar þjóðina, sama hversu mörg prósent eiga í hlut.
En til hvers listamannalaun og hvað græðum við á slíku?
Jú, við græðum nefnilega heilmikið á slíku. Til að mynda er mjög erfitt fyrir listamann að koma sér á framfæri og markaðssetja sig, og geta þessi laun hjálpað allverulega við sköpun nýrra verkefna sem geta sum hver leitt til nýrra starfa fyrir aðra ef vel gengur. Til dæmis í fatahönnun, tölvuleikjagerð, matargerð, myndlist og fleiri greinum.
Ég veit það af eigin reynslu að það lifir enginn á listinni, ekki nema þú sért reiðubúinn að lifa á engu! Þess vegna er mikilvægt að fólk með hæfileika fái stuðning til þess að stunda sína list, því ef þú þiggur laun eins og þessi, ert þú skyldug/ur til þess að sýna árangur.Við græðum bara á slíkum hlutum og varla hægt að gagnrýna slíkt!
En hvað má þá betur fara í þessu og hvernig má skera þetta niður?
Það sem er hvað mest gagnrýnivert er fjöldinn sem fær þessi laun, þann lista má skera niður að minnsta kosti um helming. Eins má leggja af að menn þiggi listamannalaun ævilangt, eða „heiðurslistamannalaun“ eða hvað sem þetta er kallað.
Í lögunum um listamannalaun stendur:
Sá sem hefur fengið heiðurslaun skal halda þeim ævilangt.
Ég veit alveg um nokkra sem ættu svona laun skilið, en ég sé ekki tilgang með þeim í krepputíð. Ég er ekki að tala um rífa þetta af þeim sem þegar hafa fengið þetta, fjarri því. Heldur að hætta að veita þau um hríð.
Eins mætti setja launaþak á þá sem þiggja svona lagað, ef við tökum t.d. að viðkomandi einstaklingur þéni ca. 350 þúsund á mánuði þá missi hann þessi listamannalaun sem koma ofan á laun hans/hennar. Rétt eins og atvinnuleysisbótakerfið virkar, þú missir bætur eftir sem þú þénar meira. Málið afgreitt.
Því Þráin Bertelsson hefur verið hvað mest gagnrýndur fyrir að þiggja bæði laun frá Alþingi og listamannalaun, ég er að koma með tillögu sem myndi leysa slíkan vanda. Þetta er aðeins spurning um nýja reglugerð/lög um þessi laun og að gæta réttlætis. Eins sparar þetta ríkinu heilmikla peninga.
Guð blessi ykkur öll og þakka ég lesturinn.
Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson
Eiga rétt á sér en launatengja þau.com
Bendi á að skv. 4.grein laga um listamannalaun mega listamenn ekki vinna fulla vinnu ásamt því að þiggja laun. Listamannalaun eru 266 þús krónur brúttó á mánuði. Sem eru rétt undir kennaralaunum. Því þarf þessi ákveðni listamaður að þéna ansi grimmt aðra mánuði ársins til þess að ná umræddu þaki. Þetta þarf að vera á hreinu.
Mánaðarlaun stórmeistara í skák eru 257.000 krónur.
Stefán … :/ ég skil þig ekki alveg.
Halli - kærar þakkir fyrir ábendinguna. En ég er aðallega að tala um Þráinn Bertels sem er á þingmannalaunum og þiggur svona “laun” á laun ofan.
GPG - takk.
Svo gleymist alltaf að tala um styrkina til fyrrveranda alþingismanna fyrir 25. apríl 2009 sem er vel ríflegur.
http://www.althingi.is/lagas/nuna/2003141.html
GPG - úfff … ekki batnar það, ég held að ég sé búinn að koma auga á hver er aðal fábjáninn í öllu þessu. Því miður, og á ég EKKI við þig GPG! Heldur þann sem varð innblásturinn af þessari grein.
Miðað við hverja þjóðin kýs á þing eru 5% ekki hálfvitar
hehehe … ég geng ekki svo langt … ömmm … skítlegt eðli?
Mér finnst fullkomlega eðlilegt að tekjutengja þessa styrki. Einnig að fólk sem hefur náð að hasla sér völl fái þá ekki æ ofan í æ. Þeir verði notaðir til að hjálpa hinum
Helmingur þjóðarinnar er undir meðalgreind. Það er svo aftur spurning hvar sá hópur stendur í pólítk. Einhver ætti að rannsaka það.
Það þarf ekki að rannsaka það. Það eru kjósendur Sjálfstæðisflokksins. Að kjósa yfir sig aftur og aftur fólk sem er í pólitík til að hygla sér og sínum en ber ekki hag venjulegs fólks fyrir brjósti er heimska.
Hvort kom fyrst, Menning eða Siðmenning?
Eiki – vonandi siðmenning.
Huliðshjálmur – jú tekjtenginginn væri nefnilega góð lausn.
Andrés – hehe … já það er spurning!