Laugardagur 18.08.2012 - 22:16 - FB ummæli ()

Ópin á Alþingi

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, segir það sem ekki má.

Ég hef nokkrum sinnum skrifað um vinnuhætti og vinnumóral á Alþingi [skrifað með stórum staf - enn um sinn.]  t.d. hér.
Undir þeim pistli svaraði góður samherji og frændi, Skúli Helgason og að vanda beittur:

Það er vinsælt þessa dagana að tala niður Alþingi. Það er hins vegar gott dæmi um lýðskrum sem ritstjóri Fréttablaðsins gerir sig sekan um í dag að setja allt starf löggjafarsamkundunnar í samhengi við fýlu og hnútukast nokkurra þingmanna. Minn ágæti frændi fellur í sama pytt með því að fella nær alla þingmenn undir þessa sök. Ég gæti nefnd fjölmörg dæmi um mál sem þingmenn hafa unnið af mikilli vandvirkni og ábyrgð í nefndum þingsins, þvert á flokka en um það er lítið sem ekkert fjallað í fjölmiðlum, sem hlaupa hins vegar eftir öllum upphlaupum í ræðustól. Þetta er val fjölmiðlanna og rammskökk mynd af því starfi sem fram fer á Alþingi.

En hvað með þessa upplifun Svandísar:

 „Þegar allir eru að æpa er hræðilegt að vera þátttakandi í þessu. Það er hræðilegt að hugsa til þess að við sitjum á þingi vegna þess að almenningur valdi okkur sem sitt besta fólk til þess að fást við erfið mál og svo er fólk á svo lágu plani að ég skammast mín.“

Það eigi við fólk úr öllum flokkum og snýst ekki um pólitískar skoðanir eða sannfæringu. „En ég er ekki viss um að sú aðferð skili okkur neinu.“

Skúli frændi hefur sannarlega rétt fyrir sér að hann og fleiri starfssamir þingmenn eru að vinna vinnuna sína.
En of mörg skemmd epli gerir starfið erfitt.
Nú ætla ég ekki að birta nafnalista með skemmdu eplunum – hver og einn getur gert slíkt. En ekki kæmi mér á óvart að á flestum ef ekki öllum listum kæmu fyrir tíu sömu nöfnin.
Þingmenn sem hafa komið óorði á Alþingi og virðingu fyrir því sem þar er gert.
Oftar en einu sinni hef ég boðið skólabróður mínum Helga Bernódussyni að vera með stutt námskeið fyrir alþingismenn um móral á vinnustað. Í hvert sinn dæsir hann. Gott ef ég hef ekki boðið forseta Alþingis hið sama!

Er ekki komið nóg?

Er Alþingi eini vinnustaðurinn þar sem ekki þarf að bæta vinnuandann?

Lýk máli mínu með sama tilboði og áður:

Ég hef boðið mínum ágæta skólabróður og skrifstofustjóra Alþingis að koma og halda námskeið um starfsanda. Hér með er það boð endurtekið og áréttað að það geri ég án gjalds.

 

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is