Á morgun er kosið. Á morgun eru kjósendur kallaðir að kjörborðinu og þá taka þeir ákvörðun sem skiptir þjóðina máli.
Jafnvel og ekki síður í forsetakosningu.
Það hefur mikið verið tekist á um fortíðina í þessari baráttu. Um það sem er búið og gert. Kosningabaráttan hefur verið undarleg þar sem ekki lá ljóst fyrir hvort sitjandi forseti ætlaði sér að hætta.
Auðvitað á hann ekki eilífan seturétt á Bessastöðum er ég held að flestir höfðu haldið að 16 ár í þjónustu sé nóg og skilið orð forsetans þannig 1. janúar.
En undarleg atburðarás fór af stað. Forsetanum til undrunar þá bárust hvatningar 10% kjósenda um að hann gæfi kost á sér. “Stór hluti kjósenda” – eins og hann orðaði það sjálfur. En það mátti enn skilja það svo að þó hann segði “ókeiii” þá átti það bara að vera í styttri tíma en fjögur ár. Ég og ansi margir skildu það þannig. En forsetinn brást reiður við slíku skilningsleysi og ég skammaðist mín hálfpartinn að skilja ekki orð landsföðurins.
Forsetinn opnaði baráttu sína tíu dögum fyrr en hann sjálfur sagðist ætla að byrja – eins og ég skildi orð hans. Aldrei var hann spurður um þetta bráðræði, enda var það vart þorandi. Líklegast sagði hann það bara ekki.
En opnunin var vægast sagt eftirtektarverð. Gaf tóninn hvert þessi kosningabarátta leiddi.
x Maki þess frambjóðanda sem verulega ógnaði setu hans á Bessastöðum nýtti sér aðstöðu sína að sverta forsetann (3, pers. einræðan). Aftúlkaði orð hans á ófaglegan hátt.
x Ríkisstjórnin og aðallega Samfylkingin stæðu að baki þessari ósvífnu tilræði við hann.
x Brusselvaldið var einnig ógnvaldur og fullveldi landsins í hættu.
x Algjör upplausn væri í landinu bæði stjórnarfarslega og efnahagslega. Hann gæti ekki brugðist þjóðinni á ögurstundu – á óvissutímum.
x Hann yrði einnig að vera verndari þess að stjórnarskráin yrði ekki breytt hættulega mikið miðað við “óskýrar tillögur” stjórnlagaráðs.
x Hann (órg) yrði að verja hefndur sína af þeim ásökunum að hann hefði verið ein helsta klappstýra útrásarvíkinganna.
x Að lokum þyrfti að gæta þess að einhver annar færi nú að setja embættinu einhverjar siðareglur. Það væri ósvinna.
Auðvitað er sýn mín lituð. Eiginlega lituð reiði yfir því að kjósendur virðast ekki vilja vita þetta.
Þeim sé eiginlega sama.
En kjósendur hafa skyldur. Skyldur til að fræðast um hvað er kosið.
Verði Ólafur Ragnar Grímsson kosinn á morgun er það líkt og keypt sé vara sem er útrunnin.
Kosið til fortíðar.
Gísli Baldvinsson