Sunnudagur 24.06.2012 - 18:58 - FB ummæli ()

Lokaspretturinn

Ég ætla að horfa fram á við en ekki skrifa síbyljublogg í þáskildagatíð um flokkslínur í Icesavemálinu.

Í innsetningarræðu sinni sagði nýkjörinn biskup:

„Framtíð okkar er björt eins og sumarnóttin og jafnvel þó að við villumst af leið um stund verður að okkur leitað þar til við finnumst. Hið sama á við í lífi okkar.”

Hér er ekki framtíðin töluð niður og ekkert nema ógnir og óvissa bíði þjóðar.

Annar frambjóðandi sagði:

Í dag var brotið blað í kjöri fyrsta kvenbiskups. Þjóðin getur brotið annað blað í sama mánuði með kjöri mínu.

Í stuttu máli er staðan þessi:

x     Núverandi forseti hefur forskot í könnunum þó ekki afgerandi þrátt fyrir að flestir álitsgjafar landsins hafi nú þegar spáð honum sigri.

x     Hatrammar árásir á Þóru og maka hennar hafa dunið á netinu. Eftirgjammendur hafa síðan bætt í. Oft svo súrar og remmilegar að ekki verður eftir haft.

x     Núverandi forseti hefur  í sjónvarpsviðtölum sýnt spyrjendum ótrúlegan hroka og snúið út úr spurningum. Jafnframt afneitar hann eigin orðum og umturnar.

x     Mesti hluti kosningabaráttunnar hefur farið í skilgreiningar á störfum núverandi forseta og hvað hefði aðrir frambjóðendur í þáskildagatíð hefðu hugsanlega gert í stöðu forsetans.

x     Mesti hluti kosningaumræðunnar hefur farið í kennslu í stjórnlagafræðum, stundum á kolröngum forsendum aðallega af fyrrverandi prófessor í stjórnmálafræðum.

x     Það hefur skýrst að valið stendur milli forseta sem vill meiri völd og breyta þingræði í forsetaræði.

x     Stórmál gert úr þátttöku Þóru Arnórsdóttur í stúdentapólitík og störfum fyrir Alþýðuflokkinn, á sama tíma að ljóst er að Ólafur Ragnar Grímsson var í Framsóknarflokki, Möðruvallarhreyfingunni og Alþýðubandalaginu alla sína starfstíð sem stjórnmálamaður.

x     Hneykslun á netinu yfir ágengnar spurningar Þóru í Kastljósi, á sama tíma sem hægt er að kynna sér ágengnar spurningar unga spyrilsins Ólafs Ragnars á sínum tíma.

x     Forsetinn bókstaflega segir að Þóra (líkt og Vigdís) verði puntudúkka á Bessastöðum og hún hafi framgang í gegnum sjónvarp. Treystir forsetinn á það að menn geti ekki grennslast um uppgang hans sjálfs í gegnum sjónvarp.

x     Forsetinn rekur baráttu sína á þöggun. Svarar engu hvað varðar bókhald og svarar ekki spurningum sem lagðar eru fyrir hann. Um það hef ég bloggað.

Síðasta vikan verður spennandi.

Ég er handviss að búendur á Bessastöðum verða aðrir.

Búendur á Bestastöðum.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is