Miðvikudagur 20.06.2012 - 10:38 - FB ummæli ()

Botninum náð

Eiríkur Jónsson, fjölmiðlamaður og fréttasnapi birti viðtal við konu í gær. Ekki hirði ég að setja tengil á viðtalið svo vont var það.

Þarna náði samt kosningabaráttan fyrir forsetakosningunum nýjum botni. Svo djúpum að skrif Guðbergs eru grynningar.

Mér skilst að Eiríkur sé náinn ráðgjafi eins af frambjóðendunum, sem hefði getað stöðvað þennan illgjörning enda auglýsti Eiríkur ósómann vel fyrir birtingu.

Er eiginlega undrandi hversu lítil viðbrögð hafa orðið á netinu.

Eru netlæsir orðnir ónæmir fyrir nálykt?

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is