Færslur fyrir júní, 2012
Skylda kjósenda
Á morgun er kosið. Á morgun eru kjósendur kallaðir að kjörborðinu og þá taka þeir ákvörðun sem skiptir þjóðina máli. Jafnvel og ekki síður í forsetakosningu. Það hefur mikið verið tekist á um fortíðina í þessari baráttu. Um það sem er búið og gert. Kosningabaráttan hefur verið undarleg þar sem ekki lá ljóst fyrir hvort [...]
Alvöru forseti
Nei, pistill minn fjallar ekki í dag um íslenskar forsetakosningar. Nú skal gleðjast yfir því að Hæstiréttur Bandaríkjanna staðfesti að heilbrigðislög Obama forseta Bandaríkjanna standist stjórnarskrá. Þar sem ekki fer mikið fyrir þessum fréttum á íslenskum miðlum þá er hér skotið inn úr Jyllandsposten: Dele af Obamas sundhedsreform skal dog modificeres en anelse, men det [...]
Getur forseti komið í veg fyrir inngöngu í ESB?
Ég heyrði í einum símhringjanda á Bylgjunni áðan sem rökstuddi stuðning sinn við Ólaf Ragnar Grímsson með þessum orðum “hann getur forðar okkur frá ESB”. Nú er það svo að margir munu styðja núverandi forseta vegna viðhorfa hans og gjörða hvað Icesave snertir. Aðrir telja með kosningu hans komi þeir höggi á ríkisstjórnina. Enn einn [...]
Lokaspretturinn
Ég ætla að horfa fram á við en ekki skrifa síbyljublogg í þáskildagatíð um flokkslínur í Icesavemálinu. Í innsetningarræðu sinni sagði nýkjörinn biskup: „Framtíð okkar er björt eins og sumarnóttin og jafnvel þó að við villumst af leið um stund verður að okkur leitað þar til við finnumst. Hið sama á við í lífi okkar.” [...]
Óvenjuleg kosningabarátta
Nú viku fyrir forsetakosningarnar er vert að líta til baka og skoða baráttuna fram til þessa. Forsetinn fór brattur inn í baráttuna fyrir endurkjöri og sveigði jafnvel að starfsheiðri maka Þóru Arnórsdóttur – sakaði hann um róg og útúrsnúning á frétt um hina margumtöluðu yfirlýsingu forsetans að sitja ekki heilt kjörtímabil. Yfirlýsingin sú var reyndar [...]
Sögulegur skriflegur samningur
Enn á ný undrast ég blaðamenn og fréttamiðla. Stjórnarflokkarnir gerðu skriflegan samning um þinglok við stjórnarandstöðuna en hvergi er hægt að sjá samninginn og enginn óskað eftir því að fá að sjá hann! Ekkert er eðlilegra en að slíkur sögulegur samningur sé birtur. Samningurinn er sögulegur vegna þess að hann er skriflegur. Þarna skuldbinda formenn [...]
Botninum náð
Eiríkur Jónsson, fjölmiðlamaður og fréttasnapi birti viðtal við konu í gær. Ekki hirði ég að setja tengil á viðtalið svo vont var það. Þarna náði samt kosningabaráttan fyrir forsetakosningunum nýjum botni. Svo djúpum að skrif Guðbergs eru grynningar. Mér skilst að Eiríkur sé náinn ráðgjafi eins af frambjóðendunum, sem hefði getað stöðvað þennan illgjörning enda [...]
Forseti svarar mér ekki
Það þykir tilhlýðilegt í kosningabaráttu að svara spurningum kjósenda. Nú fá frambjóðendur vafalaust margar spurningar og erindi. Reyna væntanlega að svara sem flestum sérlega ef spurningarnar eru markvissar og efnislegar. Fljótlega eftir útkomu rannsóknarskýrslu Alþingis sendi ég forsetanum núverandi áréttingar á spurningum þeim sem lagðar voru upp í 8. bindi rannsóknarskýrslunnar. [Þáttur forsetans]. Þegar svo [...]
Meira gaspur
Gaspur netmiðlana Eyjunnar skástrik Pressunnar og Andríkis skástrik Vefþjóðviljans kemst í nýjar hæðir. Bæði Eyjan og Andríki hafa enn á ný leiðrétt leiðréttinguna frá fyrsta gaspri. Nú eru báðir miðlarnir sannfærðir um að Kristján Möller sitji í stjórn Vaðlaheiðaganga af því að firmaskrá hefur ekki uppfært stjórn þess. En með einfaldri skoðun á netinu má [...]
Gaspur dagsins
Frétt Eyjunnar skástrik Pressunnar um setu Kristjáns L. Möller í stjórn Vaðlaheiðarganga ehf. er gaspur dagsins. Fréttin er uppát fréttar á Andríki skástrik Vefþjóðviljanum. Reyndar er inn í miðri frétt þessi uppfærsla: Meðal stjórnarmanna í einkahlutafélaginu er Kristján Möller - Uppfærsla: Kristján Möller sagði sig úr stjórn félagsins 17.apríl sl. Hið sanna er að Kristján sagði [...]
Gísli Baldvinsson