Björn Bjarnason fyrrum dómsmálaráðherra og blaðamaður kemur oft með sérkennilegar fréttaskýringar.
Eftir að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra tók ákvörðun með vísan til íslenskra laga í nóvember 2011 hóf Huang Nubo að flytja óhróður um Íslendinga og íslensk stjórnvöld í Kína.
Hvar má sjá þess merki?
Varla geta menn lesið það út úr því vðtali sem Björn vísar til.
Föstudaginn 4. maí 2012 ræddi ríkisstjórn Íslands drög að samkomulagi við Huang Nubo. Samkomulagið var gert án vitundar Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra. Í kínverskum fjölmiðlum hreykti Huang Nubo sér af því að hafa sniðgengið Ögmund og lét eins og þar með væri hann kominn á beinu brautina til Grímsstaða.
Í fyrsta lagi hefur ekkert samkomulag verið gert og í öðru lagi þá er ríkisstjórn Ísland ekki fjölskipað vald eins og Ögmundur áréttaði þegar hann hafnaði sölu Grímsstaða. Og. .
Thordur Hilmarsson, managing director of the agency, is optimistic the deal will go through.
“We are working according to Icelandic law and hopefully the outcome will be satisfying for both parties,” Hilmarsson told Icelandic media.
Eitthvað hefur heimildarhæfileikinn raskast þarna.
Vil gjarnan vísa í fleiri sem hafa haft fyrir því að kynna sér málin:
Halldór Björnsson · Virkur í athugasemdum · Vinnur hjá Icelandic Meteorological Office
Ég er búinn að vera að þusa um þetta á Eyjunni og víðar, en Ögmundur fellur fyrir lélegri fréttamennsku Eyjunnar, og Egill Helgason spanerar svo silfri á það í kjölfarið. Með gúgli má á örskotstund finna frétt China Daily (http://www.chinadaily.com.cn/cndy/2012-05/05/content_15215343.htm) en í henni yrðir Núbó ekkert á innanríkisráðherra, né hans ráðuneyti. Það kemur hinsvegar fram að hann vilji að byggingarlóðin (“core construction area”) sé leigð út til 99 ára. Sem líklega þýðir að hann þekki ekki íslenska reglur um lóðarréttindi, því ef hann byggir þarna hótel ætti bæjarfélagið að geta séð til þess að hann haldi yfirráðarétti yfir lóðinni eins og hver annar húseigandi meðan húsið stendur. Þetta eru þau réttindi sem við öll sem ekki búum á eignarlóðum höfum.
Þetta er því aðallega frétt um lélega fréttamennsku Eyjunnar, tækifærismennsku ráðherra og almenna leti við að leita frumheimilda (t.d. að gúgla “china daily iceland”)….
Tilgangur minn er einfaldlega að benda á þá staðreynd að menn fara ekki rétt með í þágu málstaðsins. Tilgangurinn helgar meðalið.
Skerpum á gagnrýnni hugsun og látum ekki gamla hugsun í stjórnmálum villa veg okkar til betri umræðna.
Gísli Baldvinsson