Færslur fyrir nóvember, 2011

Miðvikudagur 30.11 2011 - 12:16

Jón eða séra Jón

Umræðan um stöðu Jóns Bjarnasonar er að taka á sig ýmsar myndir. Verst er með pólitík þegar fjölskyldan blandast. Menn eiga að taka sinn pólitíska slag utan heimilis. Of mikið af tilfinningum blandast annars í þetta. Og ekki efa ég það eina stund að Jón Bjarnason er góður heimilisfaðir. En harkan í pólitík er mikil. [...]

Mánudagur 28.11 2011 - 21:35

Björn Valur verður sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra.

Allir eiga sínar heimildir eins og Lilja Mósesdóttir sagði réttilega í dag. Hún notaði reyndar spámannsaðferðina en ég kýs að nota frasann: Samkvæmt áreiðanlegum heimildum. . . Sem sagt það verður kominn nýr sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra fyrir vikulok.

Sunnudagur 27.11 2011 - 20:30

Ríkisstjórnin riðar til falls

Fyrirsögnin finnst vafalaust mörgum dyggustu stuðningsmönnum Samfylkingarinnar ofgerð. En ég hef nú fylgst með stjórnmálum í hálfa öld og þekki einkennin. Þó hefur ríkisstjórnin þraukað eins og tarfur í nautaati. En nú er eiginlega komin tími á náðarstunguna. Af hverju? x Innanríkisráðherra hefur ekkert samráð við þá ráðherra sem lagt var til á ríkisstjórnarfundi. x [...]

Laugardagur 26.11 2011 - 12:04

Gott og vel

Umræðan snýst um ákvörðun innanríkisráðherra. Mjög margir taka hreina pólitíska afstöðu til ákvörðunarinnar, með eða á móti. Þessi hluti á einatt erfitt með að hlusta eða taka rökum. Í gær bloggaði ég um verðlagseftirlit en tók sveiginn í byrjun að óróleika innan SF. Tuttugu og þrjú orð eða ein og hálf blogglína. Varla var lyklaborðið [...]

Föstudagur 25.11 2011 - 11:44

Er ekki komið nóg?

Mér er kunnugt um þann óróleika sem fer um þingmenn Samfylkingarinnar. Þetta er pirringur vegna einstefnustífni margra félaga í Vinstri grænum. Má jafnvel vera að ef ekki komi jákvætt svar frá innanríkisráðherra í dag vegna sölu Grímsstaða þá verði það dropinn sem fylli mælinn. Það er önnur stífa sem mér finnst verri. Það er sjálfhverfa [...]

Fimmtudagur 24.11 2011 - 11:10

Kemur ekki til greina

Nú var gerð skoðanakönnun. Spurningin sem lögð voru fyrir 900 svarendur var þessi: Kæmir til greina að þú kysir Ólaf Ragnar Grímsson ef hann gefi kost á sér í næstu forsetakosningum? Hér er eins einhliða spurt og frekast er hægt. Ekki gefinn kostur á öðrum frambjóðendum enda enginn kominn fram. Þetta orðalag “koma til greina” [...]

Miðvikudagur 23.11 2011 - 11:23

Landsfundir stjórnmálaflokkana

Nú þegar 3/4 fjórflokksins hafa lokið landsfundum sínum er fróðlegt að skoða áherslur flokkana. * (sjá svo viðbót um Framsók) Áhersluþættir hjá Sjálfstæðisflokki: Atvinnumál Efnahags og skattamál Fjármál heimilanna Innanríkismál Menntamál, vísindi og menning Utanríkismál Velferðarmál Ekkert er sérlega fjallað um breytingar á stjórnarskrá nema þetta: . . Fara á varlega í allar stjórnarskrárbreytingar” Hjá [...]

Þriðjudagur 22.11 2011 - 10:52

Skattskrattinn

Nú má kalla á vælubílinn. Í gær þóttu fréttamönnum ekki fréttnæmt að nokkrar velgjörðir voru gerðar af stjórn landsins, né fyrirhuguðum matargjöfum hjálpastofna, né framlag Íslands vegna augnaðgerða í Afríku. Nei, fréttaljósinu var beint að þeim sem blása kolefnum út í andrúmsloftið. Þeir eiga svo bágt. Á sviðið birtist forstjóri flugfélagsins sem hefur algera einokun [...]

Mánudagur 21.11 2011 - 13:38

Fálka fatast flugið

Það fyrsta sem ég leit á við heimkomuna var Silfur Egils. Þar var formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins meðal umræðugesta. Það fyrsta sem ég tók eftir var að fálkinn í barmi þingflokksformannsins snéri öfugt. Fálkanum hafði fatast flugið. Margt hefur nú þegar verið skrifað um þennan landsfund, hvað var sagt og hvað ekki. Hvað var samþykkt og [...]

Laugardagur 19.11 2011 - 18:54

Hrollur

Ég fór um Auswitch og Birkenau í dag. Sá hvernig djöfulskapur var skipulagður út í ystu æsar. Bókhald með djöfullega nákvæmni um útrýmingu. Af þjóð sem við álítum siðaða. Við megum aldrei gleyma.