Færslur fyrir ágúst, 2011

Miðvikudagur 31.08 2011 - 15:56

Útburður – mátti leysa með öðrum hætti

Í dag var kona borin út úr húsi sínu. Að vísu segja fregnir að konan hafi ekki greitt af húsinu frá því fyrir hrun. Samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum DV er útburðurinn algjört neyðarúrræði Arion banka í þessu tilfelli. Kona sem býr í húsinu hætti að greiða af lánum sínum nokkru fyrir hrun. Þrátt fyrir það hefur [...]

Miðvikudagur 31.08 2011 - 11:21

Freista að fresta

Enn um Icesave. Nú freistar efnahagsráðherrann því að ESA fresti þingfestingu kröfumálsins. Haldreipið er sú staða að ekki er enn ljóst hvað þrotabú Landsbankans er mikið og líklegast/vonandi að það nægi til greiðslu krafna. Ég held að ESA sé ekki sérlega áfjáð í að fara dómstólaleiðina enda þar gæti komið fram sem styrkir frekar en [...]

Mánudagur 29.08 2011 - 18:31

Hvað vill þá Björn gera?

Björn Bjarnason fv. ráðherra fer mikinn. Hann er býsna góður í söguskýringum og rellurati. En andlag greinar Björns er þetta: Það er jafn illa stofnað til þessara breytinga á stjórnarskránni og aðildarinnar að ESB. Í báðum tilvikum er einnig stefnt í óefni, fyrir utan hve fráleitt er að stuðla að átökum innan flokka og milli [...]

Sunnudagur 28.08 2011 - 20:09

Guðmundi boðið samstarf

Eftirfarandi frétt vildi ég gjarnan sjá: Guðmundi Steingrímssyni boðið samstarf Í gær samþykkti þingflokkur Samfylkingarinnar samhljóða eftirfarandi samþykkt: Þingflokkur Samfylkingarinnar býður þingmanninum Guðmundi Steingrímssyni málefnalegt samstarf m.a. með því að hann taki kjöri í þingnefndir Alþingis með þingstyrk Samfylkingarinnar. Þá er hann boðinn velkominn að sitja þingflokksfundi Samfylkingarinnar með málfrelsi og tillögurétt. Jafnframt óskar Samfylkingin [...]

Föstudagur 26.08 2011 - 13:03

Um þrönga breiðfylkingu

Björn Jón Bragason, og Jóhann Már Helgason skrifa framboðspistil til formanns og varaformanns SUS, Sambands ungra sjálfstæðismanna: Sjálfstæðisflokkur sem breiðfylking! Hin djúpstæðu átök sem geisa innan Sjálfstæðisflokksins hafa vart farið framhjá nokkrum þeim sem fylgist með stjórnmálum. Sundrungin ristir djúpt og lamar flokksstarfið. Hin djúpstæðu átök sem geisa innan Sjálfstæðisflokksins hafa vart farið framhjá nokkrum [...]

Fimmtudagur 25.08 2011 - 10:15

Pukur og persónuvernd

Í blöðum dagsins má lesa: Það samrýmist ekki sjónarmiðum laga um persónuvernd að Vinnumálastofnun og ríkisskattstjóri hvetji til nafnlausra ábendinga með því að veita sérstaklega kost á slíkum ábendingum um meint bótasvik og skattsvik einstaklinga á heimasíðum sínum. Doh.. . Með gagnályktun má ætla að þessi lagagrein samrýmist ekki sjónarmiðum laga: 19. gr. Nafnleynd tilkynnanda. [...]

Miðvikudagur 24.08 2011 - 12:11

Lítill pistill um stóra frétt

Páll Stefánsson ritstjóri Iceland Review skrifar lítinn pistil í Fréttablaðið um hátíðarhöld Eista vegna tuttuguára afmælis frá lýðveldisstofnun, meðal annars með tónleikum. Tónleika sem enduðu á lagi Sinéad O´Connor, Nothing Compares 2 U, sem varð eins konar einkennislag sjálfsstæðisbaráttu Eista sem lauk með fullu sjálfstæði þeirra fyrir tuttugu árum. Á miðnætti, eftir tóna írsku söngkonunnar, [...]

Þriðjudagur 23.08 2011 - 10:31

Brotthvarf Guðmundar

Ekki kom mér úrsögn Guðmundar Steingrímssonar úr Framsóknarflokki á óvart. Það sem kom mér á óvart er hissa formanns flokksins og Vigdísar Hauksdóttur alþingismanns. Ég á erfitt að trúa því að þau hafi sett upp pólitískan hissuleik – trúi því að um pólitíska blindu sé að ræða. Þá leið sem Guðmundur fer nú er langhlaup [...]

Mánudagur 22.08 2011 - 11:51

Bjarna boðið á Þorsteinsbeinið

Aldrei áður hefur fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokks tekið starfandi formann sama flokks á jafnt hart bein. Nú er ég ekki að tala um hið sögufræga hvalbein á skrifstofu rektors Menntaskólans á Akureyri, heldur karphús Þorsteins Pálssonar á Kögunarhóli. Hann í raun segir að Bjarni Benediksson skáki Sjálfstæðisflokknum út í horn í íslenskum stjórnmálum án gildra raka: [...]

Sunnudagur 21.08 2011 - 19:38

Krítík um menningarnótt, að mestu góð

Nú er ég búinn að anda að mér menningarnótt í höfuðborginni og hér koma helstu niðurstöðurnar. Undirbúningurinn og fjölbreytnin fá tólf stig. En smekkurinn er mismunandi og nú þegar hafa menn ritdeilt um tónlistarsmekk kvöldsins. Ég var á nokkru flandri þennan dag og þegar fór að kvölda fór ég að taka eftir tónlistarvali á ýmsum [...]