Mánudagur 20.06.2011 - 11:52 - FB ummæli ()

Ríkisvæðum RÚV

Ég hélt ekki að frá mér kæmi svona fyrirsögn. En dagskrárstjórn Páls Magnússonar, útvarpsstjóra er óásættanleg.
Margrét Örnólfsdóttir kvikmyndagerðakona skrifar farir sínar ekki sléttar í Fréttablaðið í dag.

Íslenskar kvikmyndir hornreka á RÚV

Undanfarið hefur RÚV stært sig af því að í uppsiglingu sé íslenskt kvikmyndasumar, sýna eigi fjölda íslenskra bíómynda, bæði nýlegar og gamlar og góðar, sannkölluð kvikmyndaveisla. Þetta væri vissulega eitthvað til að hrópa húrra fyrir – ef maður væri andvökusjúklingur. Fyrsta myndin sem greiðendum afnotagjalda var boðið upp á var nýjasta mynd Dags Kára Péturssonar, The Good Heart. Það skal undirstrikað sérstaklega að um frumsýningu á íslenskri kvikmynd á RÚV er að ræða og maður myndi því ætla að henni væri valinn besti hugsanlegi tími í dagskránni eins og slíkum viðburði er sæmandi.

Ríkissjónvarpið kaus að sýna myndina aðfaranótt annars í hvítasunnu, nánar til tekið þegar klukkan var tíu mínútur gengin í eitt eftir miðnætti. Eftir að mér var runnin mesta reiðin yfir þessari fráleitu tímasetningu (sýningu myndarinnar lauk þegar klukkuna vantaði tíu mínútur í tvö!) fór ég að velta því fyrir mér hvaða mögulegu ástæður gætu legið að baki þeirri ákvörðun að ræna stærsta hluta þjóðarinnar þeirri ánægju að horfa á íslenska kvikmynd. The Good Heart er ekki hryllingsmynd, hún er meira að segja leyfð til sýninga fyrir alla aldurshópa

Margrét vekur svo athygli á því að aðrar íslenskar kvikmyndir verði sýndar á svipuðum næturtíma.
-
Fréttatímar raskast oft vegna íþróttaleikja sem einungis 7% skylduáhorfenda RÚV hafa áhuga á. Á sama tíma er leikjunum lýst beint í útvarpi.
Hver man ekki eftir kurrinu sem varð í kringum opnun Hörpunnar?
RÚV er opinbert hlutafélag, ohf svo yfirstjórn þess þarf ekki á neinn veg að taka tillit til óska skylduáskrifenda. Eins og staðan er nú sé ég ekki neina aðra lausn á stöðu þessa “þjóðarútvarps” en að taka það þéttar í ríkisfaðminn.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is