Færslur fyrir apríl, 2011

Laugardagur 30.04 2011 - 11:45

Atvinnuþref

Ljóð Halldórs Laxness, Maístjarnan á vel við í dag 30. apríl. Út um gluggann minn er snjókoma og heimafjallið Esjan hvít. Það er vetur í kjarabaráttunni. Skoðum fréttir dagsins: Segir verkalýðshreyfinguna ekki jójó SA ASÍ hafnaði í gær tilboði Samtaka atvinnulífsins um að semja til þriggja ára. Verkalýðshreyfingin vill gera kjarasamning sem gildir frá síðustu [...]

Föstudagur 29.04 2011 - 21:58

Farsæld eða feigðarflan?

Ekki var eggjahljóð í Ólínu Þ á FB í kvöld. Ólína Þorvarðardóttir Við lestur fiskveiðistjórnunarfrumvarps leitar margt á hugann. Kem nánar að því síðar. Góða helgi Svo las ég þetta: Ekki verður betur séð, fari sem horfir, en að stjórnarflokkarnir hafi snúið baki við þeim hugmyndum að innkalla kvóta um 5 til 10% á ári [...]

Föstudagur 29.04 2011 - 00:31

Ærumeiðingar hægri vinstri

Menn eiga að hætta þessum ærumeiðingum. Þeir einir græða á því eru þeir lögfræðingar sem senda ábirgðabréfin og stika um dómsali. Fé verður vafalaust reitt af þeim sem hamshitnuðu og fjölmiðlar birta sérlega þau orð og setningar sem ómerkt eru. Umræðan er þó ekki ný. Stjórnmálamenn fyrri alda áttu meiðandi orð í orðaforða sínum. Nú [...]

Miðvikudagur 27.04 2011 - 23:16

Örstutt upprifjun

Gott er að rifja upp. Nú ætla ég einungis að benda á nokkur atriði og þá einmitt í ljósi þess hver staðan er í kjaramálunum. Fleiri en ég undrast þessa “atvinnuleið” SA, en því miður dettur engum fréttamanni að ganga nær framkvæmdastjóra SA um þessa undraleið. Í ljósi þeirrar alvarlegu stöðu sem kjaraviðræður eru komnar [...]

Miðvikudagur 27.04 2011 - 11:06

Hin óráðna staða óháðra

Sannarlega má taka undir þessi orð: Undirrituð hafa í dag og undanfarna daga farið yfir stöðuna eftir úrsögn úr þingflokki Vinstri grænna. Staðan í íslenskum stjórnmálum er óráðin. Það er niðurstaða okkar að ekki sé tímabært að svo stöddu að stofna nýjan þingflokk. Þetta er jú tekið úr fréttatilkynningu þremenninganna Lilju, Atla og Ásmundar. En [...]

Þriðjudagur 26.04 2011 - 10:39

Samtök atvinnulífsins í handbremsu

Enn eitt nei-ið barst frá SA eftir páskahelgina. En hver er skýring framkvæmdastjóra SA? Ástæðuna sagði Vilhjálmur þá sömu og komið hefur áður fram; að fallist verði á að farin verði atvinnuleið sú sem samtökin hafa kynnt og telja einu raunhæfu leið Íslands út úr kreppunni. Gott og vel hver er þessi atvinnuleið? Hana má [...]

Mánudagur 25.04 2011 - 10:49

Kommentfólkið

Mig langar að skrifa um það fólk sem kemur inn á kommentdálka bloggara og frétta. Mig langar til að taka dæmi úr mínum eigin ranni. Í mörgum þessum kommentum er fullyrt og staðhæft um ýmis málefni sem á sér engar stoðir. [þess skal getið að umræðan lagaðist eftir kl 15] . Verst er þetta í [...]

Laugardagur 23.04 2011 - 12:39

Tökum í framrétta hönd

Siv Friðleifsdóttir er í athyglisverðu viðtali í Fréttatímanum um helgina. Hún bendir réttilega á þá staðreynd að þjóðstjórn sé óeðlileg eða óheilbrigð stjórnarmynstur. En hún sér annað mynstur: “Ég sé fyrir mér algjöra uppstokkun og nýja ríkisstjórn. Ég tel skynsamlegast að hún verði mynduð af Framsóknarflokki, Vinstri grænum og Samfylkingu sem gerðu með sér nýjan [...]

Fimmtudagur 21.04 2011 - 11:24

Virkisvetur að baki

Vetur er að baki og sumar framundan. Þessi vetur hefur verið vetur deilna og sundurlyndis. Virkisvetur. Ekki það að stór hluti þjóðarinnar hafi staðið í stríði og deilum. En hávær minnihluti. Ég hef vissulega tekið þátt í þessum deilum en reynt að hafa mál mitt á lágværum nótum. En stundum er það ekki hægt þegar [...]

Mánudagur 18.04 2011 - 19:24

Þjóðaratkvæðagreiðsla – einföld leið

Margt vefst fyrir Vilhjálmi Egilssyni þessa dagana. Á Alþingi voru það tvö baráttumál sem hann er þekktur fyrir: *Vildi hækka hámarkshraða á hringveginum í 110 km/klst og * Færa klukkuna eftir birtustig þannig að börn mættu í skóla klukka 5 að morgni miðað við tímabelti. En ekki fær hann séð að hægt sé að kjósa [...]