Færslur fyrir september, 2010

Miðvikudagur 29.09 2010 - 21:11

Versta niðurstaðan

Ég hef haldið mig frá lyklaborðinu í dag. Í staðinn hamrað á lyklaborð hugans. Nú þegar rykið af atkvæðagreiðslu gærdagsins byrjar að setjast er ekki annað hægt að segja að útkoman eða niðurstaða Alþingis er sú versta sem hugsast gat. Ég satt best að segja harma afgreiðslu Alþingis. Þingheimur þarf að gera upp við fortíðina [...]

Þriðjudagur 28.09 2010 - 18:30

Af hverju ekki fjögur já eða fjögur nei?

Þá er ljóst hvernig málin fóru á Alþingi. Mér fannst þetta vera magnaður klukkutími á meðan þingmenn annað hvort sögðu NEI eða JÁ. Nú munu menn hópast í skoðanahópa og hver og einn hópur skerpir sinn málstað. Oft hef ég haft erfitt að haldast í einum skoðanahóp og frekar fengið skammir en hrós fyrir slíkt. [...]

Þriðjudagur 28.09 2010 - 15:09

Að vera vanhæfur eða velhæfur

Velvinnandi þingmaður Ólína Þorvarðardóttir spurðist fyrir um hæfi þingmanna. Ekki kom mér svarið á óvart. Vissi þetta fyrir nema hvað varðar fjölskyldutengsl Össurar Skarphéðinssonar og Ingibjörgu Sólrúnar Gísladóttur. En. . . . Það er þar með ekki sagt að þeir sjömenningarnir sem sátu í ríkisstjórn 2008 séu velhæfir. Þeir eiga þetta auðvitað með sjálfum sér [...]

Mánudagur 27.09 2010 - 23:05

Ráðherraábyrgðin perónugerð

Eftir lestur á ágætri fréttaskýringu og skimun á Fasbókinni minni þá hef ég áhyggjur af eftirfarandi þáttum: x Margir persónugera afstöðu sína. Tala ekki um ábyrgð formanna stjórnarflokkana, heldur “aðför að Geir og Ingibjörgu”. x Margir flokksgera afstöðu sína. “Flokkurinn” er búinn að gefa út þessa afstöðu og ég styð mína menn. Þegar ég ákvað [...]

Sunnudagur 26.09 2010 - 16:10

Fáum sem flesta að ESB borðinu

Ég var á merkilegum og fræðandi fundi s.l. laugardag þar sem Joe Borg hélt fyrirlestur. Joe Borg sem er fyrrverandi yfirmaður sjávarútvegsmála hjá ESB. Hann sagði áheyrendum frá reynslu Maltverja af inngöngu og inngönguferlinu. Hann svaraði kurteislega jafnvel spurningum frá einum fundarmanna sem voru út í hött hvað ESB varðar. Hann fór yfir og staðfesti [...]

Föstudagur 24.09 2010 - 12:07

Aðkomusteypan

Smá frétt kveikti hugsun í morgun. Stöðvaði stéttargerð með aðkomusteypu Bæjarstjórinn í Grundarfirði stöðvaði vinnu við endurnýjun gangstéttar við bæjarskrifstofurnar vegna þess að ekki var notuð steypa frá fyrirtæki í bænum. Deilan leystist þegar bæjarstjórinn gaf eftir á fundi með verktakanum í gær. Björn Steinar Pálmason bæjarstjóri stöðvaði í fyrradag steypuvinnu við endurnýjun á gangstéttum [...]

Fimmtudagur 23.09 2010 - 12:38

Bændablað á villugötum

Það má með sanngirni segja að skattgreiðendur kosti útgáfu Bændablaðsins. Eftirfarandi má lesa á forsíðu þessa ágæta blaðs: Aðildarviðræður við ESB orðnar aðlögunarferli Að mati [bænda]samtakanna hafa bæði stjórnvöld og ESB þrýst verulega á um að stjórnsýsla og löggjöf verði aðlöguð að reglum sambandsins á meðan á aðildarviðræðum stendur og áður en aðildarumsókn hefur fengið [...]

Miðvikudagur 22.09 2010 - 12:12

Hvað sögðu þingmenn í des. 2009?

Alltaf er fróðlegt að skoða ummæli þingmanna þegar frá líður. Nú þegar deilt er um það atriði hvert beri að vísa þingsályktunum þingmannanefndarinnar að skoða ræður þingmanna við mótun frumvarpsins um þingmannanefndina. (146/2009) Frumvarpið var flutt af forsætisnefnd og birti ég nokkra ágætis punkta: Valgerður Bjarnadóttir (Sf) — Hér hefur það verið gagnrýnt að þingið [...]

Þriðjudagur 21.09 2010 - 11:37

Ætlar þetta fólk ekki að víkja af þingi?

Þegar þetta er ritað þá er ljóst að mikill hráskinnsleikur er hafinn á Alþingi. Sá draumur hugsjónarmanna að hægt yrði að Alþingi gæti tekið við rannsóknarkeflinu og komist að niðurstöðu hefur breyst í martröð. Menn taka afstöðu út frá persónum og stjórnmálaflokkum. Við það reisa menn ýmsar rökstoðir eins og gengur. Jafnvel hafa menn byggt [...]

Mánudagur 20.09 2010 - 12:19

Vanhæfur og óhæfur

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins fer mikinn í Landsdómsmálinu. Þó hefur hann ekki enn komist í ræðustól Alþingis. En fari svo, muni sjálfstæðismenn leggja til að Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, fari fyrir Landsdóm fyrir að samþykkja samning um Icesave í fyrra, sem hafi teflt efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar í hættu. Guðlaugur lýsti þessu yfir í umræðum [...]