Færslur fyrir júlí, 2010

Föstudagur 30.07 2010 - 12:56

Hvað eru ofurlaun?

Strax eftir bankahrun komu ýmsar yfirlýsingar frá stjórnmálamönnum að útrýma yrði ofurlaunum í fjármálaheiminum. (des 2009) Nú gerir ég fastlega ráð fyrir að þetta frumvarp hafi orðið að lögum. En. . fyrir mér eru tvær miljónir á mánuði ofurlaun. Skoðum fréttir síðustu daga: Í blaði Frjálsar verslunar er birtur listi yfir laun um 350 manna [...]

Fimmtudagur 29.07 2010 - 11:48

Fylgið mun vaxa

Það er fullkomlega eðlilegt að fylgi við aðild að Evrópusambandinu sé ekki meir en það er í dag, eða um þriðjungur kjósenda. Í raun og veru furðulega stór hluti kjósenda. Tortryggni eða jafnvel ótti við vissa hluti er sýnilegur og oftar en ekki skapast misskilningur og mýtur. Dæmi um þetta eru umræður á bloggi einnar [...]

Miðvikudagur 28.07 2010 - 14:05

Að borga vel fyrir fækkun áskrifenda

Skattadrottningin Guðbjörg Matthíasdóttir greiðir miljón á dag í skatta. Það er vel að sér vikið. Í vinnu hjá henni er ritstjóri. Ef skoðaðar eru tekjur nokkurra áberandi fjölmiðlamanna virðast ritstjórar Morgunblaðsins vera með tekjuhæstu blaðamönnum landsins. Davíð Oddsson er samkvæmt skránni með 3.963.303 krónur á mánuði á meðan hinn ritstjórinn, Haraldur Jóhannessen, er með 1.987.314 [...]

Þriðjudagur 27.07 2010 - 18:32

„Sögusagnir af andláti mínu eru ýkjur.“

. . . sagði rithöfundurinn Mark Twain. Síðustu vikurnar hafa ýmsir bloggarar skrifað í orðríkidæmi sínu um “ríkisstjórn á banabeði”, “ríkisstjórn í öndunarvél”. Þetta eru væntanlega bloggarar sem aðhyllast framkvæmdastjórnmál en ekki samræðustjórnmál. Magmamálið var verkefni ekki banabiti. Staðreyndin er sú að þessi ríkisstjórn var kosin af meirihluta kjósenda til að komast út úr þeim [...]

Þriðjudagur 27.07 2010 - 11:35

Svokallaðar fjölskylduhátíðir

Ekki þarf lengi að fletta vefmiðlum til að sjá fréttir af útihátíðum landsmanna. Verst finnst mér þegar verið er að auglýsa fjölskylduhátíðir sem breytast í slarkhátíðir. Er þetta það sem við viljum? Hér er smá slóðatiltekt: Bæjarhátíðir að íslenskum sið. “Fjölskylduhátíðin” Mærudagar. Höfuðborgin með sífellda bæjarhátið. Hátíð á Galtalæk. Hátíð á Flúðum. Goslokahátíð skipulögð af [...]

Mánudagur 26.07 2010 - 11:45

Brussel: Byrjað á löngu ferli

Í dag finnst mér gleðidagur. Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins samþykktu í morgun að hefja formlegar viðræður við Ísland um inngöngu í sambandið. Á morgun hefst ríkjaráðstefna Íslands og Evrópusambandsins og mun Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sitja fundinn. En þetta er upphafið að löngu ferli. Ég vil leyfa mér að nota uppsetningu Fréttablaðsins: Næstu skref í samningaferlinu X Samningaviðræðurnar [...]

Laugardagur 24.07 2010 - 21:36

Kapphlaup í Afdölum

(AF)-Dalabóndinn Ásmundur Daði Einarsson, sá hinn sami sem svarar ekki beinum spurningum um margrædd SMS, á sér skoðanasystkin í Afdölum. Aðallega er keppni í því hver sé bestur í afdælísku. Þetta rímar ágætlega við bundiðfyriraugun sjónarmið Sjálfstæðisflokksins í svipuðum málum. Um hvað ég sé að tala? Skoðið þetta hér, hér og hér – Ég skil [...]

Föstudagur 23.07 2010 - 13:31

Heimamaðurinn

Nú þegar víða er verið að ráða fólk til starfa hjá sveitarfélögum. s.s. bæjar- og sveitarstjóra, skólastjórnendur og embættismenn ofarlega í virðingarstiganum, (miðað a.m.k. við laun) þá koma viss atriði til greina. Yfirleitt eru þetta atriði sem nefnd eru í starfsauglýsingunni. Stundum er auglýsingin svo nákvæm að það megi segja að hún sé klæðskerasumuð fyrir [...]

Mánudagur 19.07 2010 - 23:00

Opin spurning til Ásmundar

Sæll Ásmundur Einar, og fyrirgefðu að ég trufla þig í brakandi þerrinum. Mig langar bara til að spyrja þig um eitt: Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG, sagði í grein sem hann ritaði í Morgunblaðið á laugardaginn að einstakir þingmenn hafi fengið send sms skilaboð þegar að atkvæðagreiðslan um málið stóð yfir á Alþingi. Skilaboðin hafi [...]

Mánudagur 19.07 2010 - 18:14

Lánsamir og ólánsamir

Þeir sem tóku myntkörfulán eru ólánsamir. Ólánsamir lántakendur. Þeir sem ekki tóku myntkörfulán eru lánsamir. Lánsamir lántakendur. Þannig varð það þangað til hæstaréttardómurinn fordæmandi féll. Nú er spurningin hver er sá lánsami? x Sá sem tók myntkörfulánið x Sá sem tók verðtryggða lánið . . . Nú eða X Sá sem ekki tók neitt lán. [...]