Þessa dagana er ég að glugga í fyrirspurnir og þingmál. Tímabilið 1999-2005 er einkar athyglisvert. Í dag skoðum við eina fyrirspurn og veltum fyrir okkur framhald hennar.
131. löggjafarþing 2004–2005. Þskj. 739 — 422. mál. 1. febrúar 2005
Svar viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta.
Svarið kemur hér:
131. löggjafarþing 2004–2005. Þskj. 739 — 422. mál. 1. febrúar 2005
Svar viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta.
Jóhanna Sigurðardóttir spurði um þróun heildareignar Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta sl. fimm ár, hve mikið bankar og sparisjóðir greiddu inn til sjóðsins sl. fimm ár og hvort það séu tilskilin framlög samkvæmt lögum. Loks spurði Jóhanna hvort Fjármálaeftirlitið hafi gert athugasemdir við stöðu sjóðsins með tilliti til tryggingaverndar eða áhættustýringar eða annarra þátta sem lúta að fjárhagslegri stöðu sjóðsins út frá öryggi innstæðueigenda og hvort fram hafi komið tillögur frá eftirlitinu til að styrkja fjárhagsstöðu sjóðsins eða eftirlit með honum.
Í svari ráðherra kom m.a. fram:
Fjármálaeftirlitið hefur heldur ekki sett fram tillögur gagnvart Tryggingarsjóði til að styrkja fjárhagsstöðu sjóðsins eða eftirlit með honum. Rétt er þó að geta þess að á síðasta ársfundi Fjármálaeftirlitisns 3. nóvember 2004 ræddi forstjóri eftirlitsins um að huga þyrfti að styrkingu tryggingaverndar innstæðueigenda og fjárfesta. Í ræðu forstjórans kom eftirfarandi fram um þetta atriði: ,,Í fyrsta lagi mætti huga að því hvort þörf sé á að styrkja þá tryggingavernd sem komið hefur verið á með lögum nr. 98/1999, um innstæðustæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta. Samkvæmt þeim skal heildareign innstæðudeildar tryggingasjóðsins [sic] að lágmarki nema 1% af meðaltali tryggðra innstæðna í viðskiptabönkum og sparisjóðum á næstliðnu ári. Heildareign verðbréfadeildar sjóðsins sem stendur til tryggingar fjármunum í fjárvörslu skal að lágmarki nema 100 m.kr.
Tímabært er að huga að því hvort styrkja þurfi þetta tryggingakerfi með hliðsjón af auknu mikilvægi fjármálafyrirtækja og þeim breytingum sem orðið hafa á eignarhaldi þessara fyrirtækja frá því þetta kerfi var síðast endurskoðað.(leturbr mín)
Viðskiptaráðherra var Valgerður Sverrisdóttir.
Var það gert?
Gísli Baldvinsson