Alltaf er gott fyrir okkur landann að fá önnur sjónarhorn og sjónarmið á söguna endalausu- Icesave. Vala Andrésdóttir Withrow
Höfundur er lögfræðingur og áhugamanneskja um stjórnskipan, menntuð í Englandi en búsett í Bandaríkjunum. Það fer ekki á milli mála og sést berlega á skrifum hennar að hún hallast meir að Repúplikönum en Demókrötum í skoðunum. Hún ætlar einnig að segja NEI í Icesave-málinu:
Í sambandi við Icesave:
Það að ráðamenn þjóðarinnar hafi lofað, munnlega eða skriflega, að borga einhverjum eitthvað tek ég álíka alvarlega og að ef að kassadama eða lagerstarfsmaður í kaupfélagi lofaði mér því (og jafnvel skrifaði undir samning þess efnis) að ég mætti eiga hálfa verslunina. Það vita allir að aðeins eigandi hefur heimild og vald til slíks. Tímabundnir þjónar fólksins á þingi eða í stjórn eru ekki eigendur Íslands og geta ekki hagað sér sem slíkir. Hvorki í sambandi við Icesave eða ESB. Ekki ef Íslendingar eiga að heita frjáls þjóð.
Nú virði ég auðvitað skoðanir hennar og hún virðist að mörgu leyti vera ágætis fræðimanneskja. En þarna set ég spurningamerki. Framkvæmdavald sem hefur skuldbundið ríkið með staðfestingum og löggjafarþingið staðfest ekki bara einu sinni, heldur tvisvar er ekki kassadama. En umræðan er ágæt og Vala hengir ekki mikið orðskraut á skrif sín.
Ég er þarna einfaldlega ósammála henni.
Gísli Baldvinsson