Fimmtudagur 28.01.2010 - 14:11 - FB ummæli ()

Forsetinn úti á torgi eða túni?

Heimsviðskiptaráðstefnan í Davos er árleg ráðstefna þar sem áhrifafólk á sviðum viðskipta og stjórnmála ásamt fræðimönnum og blaðamönnum hittast árlega í Svissneska bænum Davos og ræða félagsleg og efnahagsleg vandamál heimsins.

En hverjir fara þangað?

Thomas Larsen: Davos-topmøde i krisens tegn

Med deltagelse af flere end 1.400 internationale erhvervsledere, 41 stats- og regeringschefer, nøgleministre fra G8- og G20-landene og ni kommissærer fra EU blænder World Economic Forum i dag op for sit årlige topmøde i den lille schweiziske alpeby Davos.

Já, það eru sem sagt æðstu stjórnmálamenn heimsins saman komnir. Skoðum fleiri erlend blöð:

The Wallstreet journal 27.jan:
Iceland’s Leader Predicts Earlier Recovery
 DAVOS, Switzerland—The president of Iceland, which became one of the biggest victims of the financial crisis when its banking system collapsed, predicted an economic recovery earlier than expected.

“In the second half of this year and 2011, the recovery will be gaining strength,” Ólafur Ragnar Grímsson said in an interview at the World Economic Forum’s annual meeting here.

Mr. Grímsson said a decline in the country’s currency, the krona, is helping to revive its export industries such as fishing, manufacturing and aluminum.

Ha, forsetinn? Fer hann með utanríkismál?

Öðrum víti til varnaðar
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að örlög Íslands í efnahagskreppunni ættu að vera öðrum þjóðum víti til varnaðar.

Efnahagsmál Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að örlög Íslands í efnahagskreppunni ættu að vera öðrum þjóðum víti til varnaðar. Þetta sagði forsetinn, sem nú er á fundi í Davos í Sviss, í viðtali við Wall Street Journal.

Ólafur segist telja að íslenskt efnahagslíf fari að sækja í sig veðrið á seinni hluta þessa árs og á því næsta. Lykillinn að bættu efnahagslífi sé lausn á Icesave-deilunni. Hann segist ekki hafa rætt við fulltrúa Breta og Hollendinga í Davos. “Torgið í þessum bæ er stórt og það á eftir að koma í ljós hvort við hittumst.”- th

Hvaða umboð hefur forsetinn til að fara með viðkvæm málefni fyrir hönd þjóðarinar? Er þetta með vitneskju ríkisstjórnarinnar? Ég held ekki. Vonandi fer forsetinn varlega um torgið en er líklegast úti á túni.

p.s. Ég hef ítrekað sent forsetanum og embættinu spurningar sem ég vildi gjarnan fá svör við. Þeim hefur ekki verið svarað. Má ég þá bæta þessum spurningum við listann ef ske kynni að forsetinn megi vera að því að svara borgara. Ég skal mæta honum á Ráðhústorginu hér fyrir norðan hvenær sem er.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is