Miðvikudagur 27.01.2010 - 18:17 - FB ummæli ()

Doði og gullfiskar

Almennt minnisleysi og doði alltof margra okkar Íslendinga gerir það að verkum að við verðum að spyrja í sífellu þessara spurninga:

Hvaða flokkur sat aftur við völd yfir íslenskri stjórnsýslu samfleytt í 18 ár, allt til 2009?

Hvaða tveir flokkar hafa setið saman við völd á Íslandi lengst af lýðveldistímanum og “áttu” sér tvö viðskiptaveldi, stundum kennd við Kolkrabba og Smokkfisk, þar sem pólitísk og viðskiptaleg völd tvinnuðust saman?

Hvaða tveir flokkar stýrðu einkavæðingu bankanna á grundvelli sömu helmingaskiptareglu og áður hafði gilt um embætti og viðskiptavöld?

Hvaða flokkur skildi framkvæmdastjórann sinn og nánasta trúnaðarvin formanns síns eftir sem varaformann í bankaráði einkavædds Landsbanka sem hægri hönd Björgólfs Guðmundssonar allt að hruni bankans?

Hvaða flokkur hefur rekið dýrustu prófkjör Íslandssögunnar og um leið fengið hærri einstaka styrki frá fyrirtækjum en nokkur annar (25 og 30 milljónir frá Landsbanka og FL Group fyrir EINAR kosningar)?

Hvaða flokkur hefur ekki birt nein nöfn á fyrirtækjunum sem styrktu höfuðstöðvar flokksins og ENGAR UPPLÝSINGAR um alla styrkina til kjördæmisráða og aðildarfélaga eins og þó er orðið skylt?

Er svarið við 330 milljóna spurningunni að finna á myndinni?

Flokkar: Óflokkað

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is