Færslur fyrir janúar, 2010

Sunnudagur 31.01 2010 - 19:44

Við borgum ekki – gengur það?

Alltaf er gott fyrir okkur landann að fá önnur sjónarhorn og sjónarmið á söguna endalausu- Icesave.  Vala Andrésdóttir Withrow Höfundur er lögfræðingur og áhugamanneskja um stjórnskipan, menntuð í Englandi en búsett í Bandaríkjunum. Það fer ekki á milli mála og sést berlega á skrifum hennar að hún hallast meir að Repúplikönum en Demókrötum í skoðunum. [...]

Sunnudagur 31.01 2010 - 14:44

Slagur samherja

Nú þegar flest prófkjör eru afstaðin þá er ekki úr vegi að skoða prófkjörsaðferðina og val á framboðslista. Prófkjörs- eða forvalsaðferðir eru æði mismunandi eftir flokkum og héruðum. Hér nefni ég nokkrar: (ekki í áhersluröð): Opið prófkjör, skriflegt eða rafrænt. Allir kosningabærir og flokksmenn með þátttökurétt. Sumir flokksmenn 15 ára og eldri. Flokkskjör, rafrænt eða [...]

Laugardagur 30.01 2010 - 13:43

Kyrrstaða kostar 75 milljarða á mánuði

Gunnlaugur H. Jónsson, rekstrarhagfræðingur skrifaði grein í Fréttablaðið sem litla athygli hefur vakið að mínu mati. Greinin fjallar um kostnaðinn af því að efnahagslífið sé í frosti og að á Íslandi ríki kyrrstaða. Hann reiknar kostnað af kyrrstöðu miðað við eðlilegan hagvöxt og leiðir rökum að því að kostnaðurinn nemi 75 milljörðum fyrir hvern mánuð [...]

Föstudagur 29.01 2010 - 11:36

Viðræður í Haag okkur í hag?

Fyrstu fréttirnar um ferð formanna flokkana þriggja var ansi dulræn. Fyrirsögnin: Engin fulltrúi Samfylkingarinnar. Vonarglæta kviknaði í brjóstum margra að nýtt stjórnarmyndstur væri í loftinu. Fréttin er svona: Engra stórtíðinda í Icesave-málinu er að vænta af fundinum sem haldinn verður í Haag í Hollandi síðdegis , en vonast er til að málið þokist eitthvað fram [...]

Fimmtudagur 28.01 2010 - 21:43

Ræða forsetans í Davos

Forseti vor sagði í gær í Davos að Icesave samkomulagið þýddi að íslenskir bændur, hjúkrunarkonur og sjómenn þyrftu að borga upphæðir sem jafngilti 700 milljörðum punda í Bretlandi. Ég fór að skoða þetta: Bretar eru 62 milljónir – 200 sinnum fleiri en Íslendingar. Upphæðin ætti því að jafngilda 3,5 milljörðum punda á Íslandi. Pundið er [...]

Fimmtudagur 28.01 2010 - 14:11

Forsetinn úti á torgi eða túni?

Heimsviðskiptaráðstefnan í Davos er árleg ráðstefna þar sem áhrifafólk á sviðum viðskipta og stjórnmála ásamt fræðimönnum og blaðamönnum hittast árlega í Svissneska bænum Davos og ræða félagsleg og efnahagsleg vandamál heimsins. En hverjir fara þangað? Thomas Larsen: Davos-topmøde i krisens tegn Med deltagelse af flere end 1.400 internationale erhvervsledere, 41 stats- og regeringschefer, nøgleministre fra [...]

Miðvikudagur 27.01 2010 - 18:17

Doði og gullfiskar

Almennt minnisleysi og doði alltof margra okkar Íslendinga gerir það að verkum að við verðum að spyrja í sífellu þessara spurninga: Hvaða flokkur sat aftur við völd yfir íslenskri stjórnsýslu samfleytt í 18 ár, allt til 2009? Hvaða tveir flokkar hafa setið saman við völd á Íslandi lengst af lýðveldistímanum og “áttu” sér tvö viðskiptaveldi, [...]

Miðvikudagur 27.01 2010 - 12:17

Er þekkngarleysi aflausn á lögbrotum?

Forstjóri Sjóvá segir sig saklausa af fjármálabrotum vegna þess að hann vissi ekki hvað hann skrifaði undir! Alvarlegt er einnig þegar alþingismaður viðurkennir á opinberum vettfangi að hann hafi brotið lög vegna þekkingaleysis. Fá menn bara högg á puttann og sagt suss suss? Er það ásættanlegt að gjörðin er 4 ára gömul og komst ekki [...]

Þriðjudagur 26.01 2010 - 17:01

Ómerkileg skrif alþingsmanns

Það fylgir því mikil ábyrgð að vera alþingismaður. Auðvitað fylgir starfinu að vera ákveðinn og hvass, en… aldrei halla réttu máli. Nú hefur það gerst að dag eftir dag birtist blogg þingmannsins Þórs Saari sem vægast sagt er að mestu leiti ósannindi eða . . hrein lýgi. Þingmaðurinn hefur farið fram úr sjálfum sér í [...]

Þriðjudagur 26.01 2010 - 12:03

Þörf á þverpóltískri sátt

Enn þrátta menn. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, telur ekki ráðlegt að hringla með kjördaginn. Betra sé að útgáfa skýrslunnar taki mið af honum. “Best væri að klára skýrsluna og birta niðurstöðurnar í tíma og ef eitthvað er óunnið gera það í framhaldinu og birta sem viðbótarskjöl. Nú veit ég ekki hvort það er hægt [...]