Færslur fyrir júlí, 2010

Sunnudagur 25.07 2010 - 19:34

Alveg magmað!

Að ríkisstjórn Íslands skjálfi á beinunum og riði jafnvel til falls vegna sölu á hlut Geysis Green í Hitaveitu Suðurnesja til Magma er hreint ótrúlegt. Svei mér þá, get hálfvegis ímyndað mér að þetta sé eins og að vakna á þriðja degi eftir viku fyllerí, ennþá þunnur, og vera brjálaður út í barþjóninn sem seldi [...]

Föstudagur 16.07 2010 - 08:54

Ein þjóð – einn lífeyrissjóð?

Í leiðara Fréttablaðsins í morgun fjallar ritstjórinn, Ólafur Stephensen, um íslensku lífeyrissjóðina undir yfirskriftinni “Völd án aðhalds“. Þar segir m.a.: Lífeyrissjóðirnir eru mikilvægur hluti af velferðarkerfinu. Þessi hluti velferðarkerfisins er rekinn af aðilum vinnumarkaðarins í stað þess að vera rekinn af ríkinu, eins og í mörgum öðrum löndum. Íslenzka lífeyriskerfið er að mörgu leyti einstakt [...]

Fimmtudagur 15.07 2010 - 12:35

Úr helsi hagfræðinnar

Það er óhætt að segja að íslenska hrunið hafi verið allsherjar. Gjaldmiðilshrun, verðbréfamarkaðshrun, bankahrun, verðbólgusprettur, stóraukið atvinnuleysi og fjöldagjaldþrot fyrirtækja og heimila, auk þeirrar hættu sem varð, og er enn, á greiðslufalli ríkisjóðs, sveitarfélaga og fyrirtækja í opinberri eigu. Fullt hús stiga í falli hagkerfis. Við slíkar aðstæður ætti að gefa auga leið að uppbygging [...]

Miðvikudagur 14.07 2010 - 12:43

Engin hætta á þjóðargjaldþroti

Það er kannski fjarlægðin, en þegar maður í eftirmiðdaginn lítur á fréttir á netinu að heiman, finnst manni oft hysteríubragurinn á sumum fréttunum vera full mikill. Gott dæmi er þessi frétt á visir.is: Ísland aftur á topp tíu listanum yfir hættu á þjóðargjaldþroti Því miður er enginn tengill úr frétt visir.is yfir í heimildina sem [...]

Fimmtudagur 08.07 2010 - 09:01

Merk grein Árna Páls

Ástæða er til að mæla með grein Árna Páls Árnasonar, félagsmálaráðherra, í Fréttablaðinu í morgun. Þar fjallar hann um stöðu mála í kjölfar gengisdóms Hæstaréttar og er ekki annað hægt en að fagna sérstaklega niðurlagi greinar ráðherrans, en þar segir: Skilaboðin til fjármálafyrirtækjanna eru skýr: Þau verða að axla byrðarnar af eigin verkum og við [...]