Færslur fyrir nóvember, 2008
Ásetningur og afleiðing gjaldeyrislaganna
Eftirfarandi grein undirritaðs birtist í Fréttablaðinu í morgun og á visir.is: Nýsamþykkt lög um breytingu laga um gjaldeyrismál vekja spurningar. Sérstaklega heimildarákvæði Seðlabankans um reglusetningu um gjaldeyrisskil, en það hljómar svo: „Seðlabanka Íslands er heimilt, að fengnu samþykki viðskiptaráðherra, að setja reglur um að skylt sé að skila erlendum gjaldeyri sem innlendir aðilar hafa eignast [...]
Nýjustu tölur
Það eru 28 dagar til jóla. Skráð atvinnuleysi er komið upp í 6.558 manns skv. vef Vinnumálastofnunnar (25. nóv). Gengi Evrunnar er komið í 180 krónur skv. Seðlabanka Íslands, var 166 krónur fyrir tveimur vikum síðan. Gengi Evrunnar er komið í 265 krónur skv. Seðlabanka Evrópu, var 200 krónur fyrir tveimur vikum síðan. Athyglisvert er [...]
Kjararáð mun tæpast lækka laun
Forsætisráðherra beindi því til kjararáðs fyrir helgi að kanna möguleikan á því að lækka laun æðstu embættismanna um 5 til 15%. Kjararáð fundaði um málið í dag en lauk ekki umfjöllun sinni. Ráðgert er að ráðið eigi fund að nýju næstkomandi föstudag, en formaður ráðsins kveðst víst ekki gera ráð fyrir niðurstöðu þá. Samkvæmt starfsreglum [...]
Nýjan gjaldmiðil núna?
Við erum komin með nýja banka og erum víst að byggja nýja Ísland. Við sitjum engu að síður uppi með ýmislegt af því gamla og er það misgott eins og gengur. Eitt af því gamla sem við sitjum uppi með er krónan. Allir virðast sammála um að það sé afleitt, en engin hefur enn komið [...]
”Fjárhagsleg endurskipulagning”
Á bls. 33 í Morgunblaðinu í dag birtist eftirfarandi grein eftir fyrrum skólabróður minn úr Landakotsskóla, Hallbjörn Karlsson. Hún er skyldulesning og er endurbirt hér með góðfúslegu leyfi höfundar: „Fjárhagsleg endurskipulagning“ Á SÍÐUSTU mánuðum hafa ómæld verðmæti Íslendinga glatast. Ástæðurnar eru margar en grundvallarástæða þess hvernig fór var óskynsamleg skuldsetning. Helstu fyrirtæki landsins voru og [...]
Nýja gengisleiðrétta vísitölu neysluverðs
Í fyrradag var samþykkt með hraði frumvarp félagsmálaráðherra um greiðslujöfnun. Í því felst að hluti þeirra vísitöluhækkunar lána sem orðið hefur vegna mikillar verðbólgu er færður aftur fyrir. Þetta er skammgóður vermir – linar greiðslubyrði nú fyrst í stað, en kemur hart niður síðar. Ekki var hægt að frysta, fresta eða taka úr sambandi vísitölubindinguna, [...]
Brotthvarf Guðna
Það voru vissulega stór-pólitísk tíðindi í gær að Guðni Ágústsson skyldi segja af sér bæði þingmennsku og formennsku í Framsóknarflokknum Að Guðni skyldi kjósa að hverfa af vettvangi kemur í sjálfu sér ekki á óvart, tímasetning og aðferðarfræðin gerir það hins vegar. Þann 10. september síðastliðinn velti ég því upp hér á þessum síðum að [...]
Hinir fimm fræknu…
Þættinum hefur borist bréf… Hin fimm fræknu sem rannsaka eiga bankahrunsglæpina Alþingi hefur nú til afgreiðslu frumvarp til laga um embætti sérstaks saksóknara. Áhugasamir geta nálgast frumvarpið hér: http://www.althingi.is/altext/136/s/0156.html Frumvarpið geri ráð fyrir því að stofnað verði tímabundið rannsóknarembætti sérstaks saksóknara “til að annast rannsókn á grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda og í tengslum [...]
Ekki kosningar… strax
Krafan um kosningar fyrr en síðar verður æ háværari. Það er skiljanlegt. Í ljósi þess að nú blasir við að innan fárra vikna verður tekin ákvörðun um aðildarumsókn að ESB eigum við að halda í okkur með kosningar. Þær eiga að fara fram strax að loknum aðildarviðræðum. Nú skulum við gefa okkur það að Sjálfstæðisflokkurinn [...]
Magnaður miðstjórnarfundur
Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins í gær er án efa einhver magnaðasti flokksfundur sem ég hef setið. Þar dró engin neitt undan og engin afsláttur var veittur. Niðurstaða fundarins er hins vegar krítskýr. Flokkurinn er á hraðferð til Evrópu, stefnan afdráttarlaus í öðrum málum og menn tilbúnir á þessum síðustu og verstu tímum að standa fastir fyrir á [...]
Friðrik Jónsson