Færslur með efnisorðið ‘Evran’
Kaupmáttur launa og verðlagsþróun
Já Ísland, samtök Evrópusinna, birtu í vikunni athyglisverðar niðurstöður um verðlagsþróun á Íslandi og evrusvæðinu, byggða á gögnum Hagstofu Íslands. Þar kemur í ljós að mun meiri stöðugleiki ríkir á evrusvæðinu á meðan verðlag hækkar stöðugt á Íslandi. Tómas Inga Olrich, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, hélt því fram á Bylgjunni að kaupmáttur launa hefði fallið [...]
Krónan veikir lífskjör almennings
Alþjóðavinnumálastofnunin í Genf birti í fyrsta sinn upplýsingar um meðallaun í 72 löndum víða um heim. Ísland er í 19. sæti þjóða þegar kemur að meðallaunum almenns launafólks í heiminum. Hæstu meðallaunin í heiminum eru í Lúxemborg en þar fær launþeginn ríflega hálfa miljón á mánuði. Laun er næst hæst í Noregi eða tæplega 470 [...]
Krónan fellur mest af öllum gjaldmiðlum
Visir birtir frétt af því að íslenska krónan hefur fallið mest gagnvart bandaríkjadollar af öllum gjaldmiðlum heimsins það sem af er þessu ári. Það á bæði við um gjaldmiðla þróaðra og nýmarkaðsríkja. Fréttin er byggð á úttekt Bloomberg fréttaveitunnar. Íslenska krónan hefur fallið um 3,4% gagnvart dollaranum. Næst á eftir krónunni kemur argentínski pesóinn en [...]
Að tala niður krónuna
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hélt því fram á Bylgjunni að ummæli Jóhönnu Sigurðardóttir um ónýta krónu séu óforsvaranleg. Það skýtur svolítið skökku við að maðurinn sem á sama tíma stóð fyrir ráðstefnu um mikilvægi þess að taka upp Kanadadollar skuli saka forsætisráðherra um að tala niður krónuna.
Willkommen im Euro-Club
„Velkominn í evruklúbbinn“ stendur á forsíðu þýska viðskiptablaðsins, Handelsblatt. Svissneski seðlabankinn hefur ákveðið að bregðast við falli svissneska frankans að undanförnu með því tengja gjaldmiðilinn við evruna. Bankinn sagði, að gengi frankans væri allt of hátt skráð. Það hefði skaðleg áhrif á svissneska hagkerfið og yki hættu á verðhjöðnun. Þetta er sérstkalega athyglisvert í ljósi þess að [...]
Nánara félagslegt samband?
Angella Merkel, kanslari Þýskalands, og Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, ætla að hittast á morgun í París til að fara yfir stöðuna sem upp er komin á evrusvæðinu. Það skýrist væntanleg eftir fundinn hvort ákveðið verði að setja á stofn sameiginleg skuldabréf evruríkjanna, sem margir telja einu raunhæfu leiðina út úr skuldavanda evrusvæðisins. Merkel hefur margsinnis [...]
Er evrusvæðið að rétta úr kútnum?
Wall Street Journal segir frá því að fjárfestingar á evrusvæðinu hafi tekið kipp á árinu og það komi bersýnilega í ljós í þeim hagtölum sem hagstofa Evrópusambandsins Eurostat birti nýlega. Hagvöxtur á evrusvæðinu mældist um 0,8% á fyrsta ársfjórðungi árins, sem jafngildir 2.5% hagvexti á ársgrundvelli. Þetta er mesti hagvöxtur sem mælst hefur í þrjú [...]
Vanda evrunnar haldið niðri?
Erfiðleikar evrunnar hafa staðið yfir í rúmt ár. Evrópusambandið varð að hlaupa undir bagga með Grikklandi, Írum og Portúgal. Sambandið hefur verið gagnrýnt fyrir að grípa ekki til nægjanlegra róttækra aðgerða, en fram að þessu hefur tekist að halda erfiðleikunum í skefjum á evrusvæðinu. Aðgerðirnar hafa þó aðallega beinst að því að koma í veg fyrir [...]
Lítið traust almennings á stjórnmálum og áhyggjur af þróun efnahagsmála
Breska blaðið Guardian greinir í sunnudagsblaðinu frá nýlegri könnun á afstöðu almennings til efnahags- og stjórnmála í fimm löndum Evrópusambandsins: Bretlandi, Frakklandi, Póllandi, Spáni og Þýskalandi. Könnunin leiðir í ljós að traust almennings á stjórnvöldum og stjórnmálum er í sögulegu lágmarki. Aðeins 6% svarenda bera mikið traust til stjórnvalda. Fólk telur jafnframt að þau jákvæðu [...]
Atvinnulífið vill nothæfan gjaldmiðil
Meirihluti forsvarsmanna íslenskra fyrirtækja vill annan gjaldmiðil en krónuna samkvæmt viðhorfskönnun Viðskiptaráðs sem gerð var í janúar. Ríflega sextíu prósent forsvarsmanna um fjögur hundruð fyrirtækja telja annan gjaldmiðil en íslensku krónuna þjóna best hagsmunum viðskiptalífsins. Í könnuninni kemur fram að rúm 61% stjórnenda vill annan gjaldmiðil. Upptaka annars gjaldmiðilis nýtur mest stuðnings í þjónustu- og orkugeiranum [...]
Elvar Örn Arason