Færslur fyrir janúar, 2011

Mánudagur 31.01 2011 - 20:16

Fyrirsjáanlegt plott

Þrír þingmenn úr þremur flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að draga umsókn Íslands að Evrópusambandinu til baka. Þeir sem standa að henni eru Ásmundur Daði Einarsson, formaður Heimssýnar, Unnur Brá Konráðsdóttir, varaformaður Heimsýnar og Gunnar Bragi, Framsóknarflokki. Heimssýnarályktunin er fyrirsjáanlegt plott sem hefur þann eina tilgang að sprengja ríkisstjórnasamstarf VG og Samfylkingarinnar. Þarna hefur [...]

Sunnudagur 30.01 2011 - 11:22

Bábiljan um auðlindirnar

Klemens Ó. Þrastarson, blaðamaður á Fréttablaðinu, á heiður skilinn fyrir  yfirvegaða og málefnalega umfjöllun um Evrópumálin. Í helgarblaðinu tók Klemens hreinskiptið viðtal við Jean-Claude Piris, fyrrverandi yfirmann lögfræðisviðs ráðherraráðs Evrópusambandsins. Í viðtalinu er Piris m.a. spurður að því hvort sambandið ásælist auðlindir landsins. Þú nefndir auðlindir. Það er ákveðinn ótti hér á landi líka um [...]

Laugardagur 29.01 2011 - 01:20

Byltingin í Magreb og unga fólkið

Magreb kallast sá hluti Norður-Afríku sem liggur Norðan við Saharaeyðimörkina og vestan Nílardal. Magreb þýðir „vestur“ á arabísku. Yfirleitt er átt við fimm ríki Norður-Afríku; Marokkó, Alsír, Túnis, Líbíu og Máritaniu. Íbúar svæðisins – arabar og berbar – voru almennt kallaðir márar af Evrópubúum. Byltingin sem hófst í Túnis fyrir fáeinum dögum, kallar á nýtt [...]

Miðvikudagur 26.01 2011 - 15:31

Efnislega umræðu um ESB-aðild

GREININ BIRTIST Í FRÉTTABLAÐINU 26. JANÚAR 2011. Fyrir síðustu alþingiskosningar voru Samfylking, Framsóknarflokkur og Borgarahreyfingin með á stefnuskrá sinni að hefja samningaviðræður við Evrópusambandið og leyfa þjóðinni að kjósa um aðildarsamninginn. Frá því að meirihluti þingmanna kaus að hefja samningaviðræður hefur lítill tími farið í málefnalega umræðu um kosti og galla aðildar. Í vetur hafa [...]

Miðvikudagur 19.01 2011 - 16:08

Lífseigar goðsagnir um ESB

Rangfærslur um Evrópusambandið eru ótrúlega lífseigar. Ég hef áður fjallað um það  hérna á blogginu. Stundum er það sem sagt er uppspuni frá rótum, í öðrum tilvikum er snúið út úr staðreyndum. Kjarni málsins er að þessar sögusagnir eru öflugt vopn í höndum andstæðinga Evrópusambandsins, því fæstir hafa fyrir því að afla sér upplýsinga um [...]

Föstudagur 07.01 2011 - 15:16

Pólitísk framtíðarsýn og ESB

Svanur Kristjánsson, stjórnmálafræðiprófessor við Háskóla Íslands, hélt því fram í viðtali á Rás 2 að forysta Samfylkingarinnar hefði mistekist að útskýra fyrir þjóðinni meginröksemdirnar á bak við umsókn Íslands að Evrópusambandinu. Það er ekki nægjanlegt að einblína eingöngu á efnahagslegu röksemdirnar. Hann benti réttilega á að Svíþjóð og Danmörk hafa kosið að ganga inn í [...]