Færslur fyrir flokkinn ‘Óflokkað’
Jæja, nú er tækifæri!
Nú er ljóst að B og D ætla að mynda saman ríkisstjórn. Það er bara eðlilegt í ljósi niðurstöðu kosninganna og ég óska þeim hér með velfarnaðar. Ég vona að Framsókn lánist að gera það sem þeir lofuðu og að við getum bæði greitt niður húsnæðislán og lækkað skatta á sama tíma og tekjur ríkissjóðs [...]
Stóra húsfélagið
Fyrstu kynni mín af pólitík voru í stjórn húsfélags í blokk í Safamýrinni. Í henni voru þrír stigagangar og ein stjórn fyrir hvern stigagang. Samkomulag á milli þessara húsfélaga var svona og svona og erfitt að ná saman um mikilvægar aðgerðir eins og t.d. að gera við blokkina að utan. Því var brugðið á það [...]
Hvar er auðmýktin?
Samfylkingin hefur sett nýtt Íslandsmet í fylgistapi. Allir innan búðar hljóta að velta fyrir sér hvernig það gerðist. Eru sjálfsagt að því og hver hugsar sitt. Það sem ég var að vona að myndi gerast núna var að formaðurinn stigi fram og segði í auðmýkt fyrir niðurstöðunni eitthvað á þessa leið: Kæru félagar. Við skíttöpuðum [...]
Við þurfum Skúla, Björk og Mörð
Kosningarnar snúast um græna eða gráa framtíð. Hvort við viljum halda áfram á að byggja upp grænt hagkerfi, þekkingariðnað, skapandi greinar, setja fé í rannsóknir og sprotafyrirtæki eða hvort við viljum snúa aftur til stóriðjustefnu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Skúli Helgason á öðrum fremur heiðurinn af því að ná Eflingu græns hagkerfis – 50 vel útfærðum [...]
Frekar eitur en aðlögun
Ríkisendurskoðun benti fyrir nokkrum misserum á að bændasamtökin sæju sjálf um að útdeila styrkjum til bænda og að hagþjónusta bænda sjái sjálf um að mæla árangurinn af hinu styrkta starfi. Þetta gengi ekki og þyrfti að laga. Vegna umsóknar Íslands um aðild að ESB buðust okkur styrkir og fagleg aðstoð við að breyta þessum starfsháttum [...]
Er ekki bara Nubo létt?
Ég hef svona verið að pæla í þessu Grimmsstaðamáli öllu. Á dálítið erfitt með að skilja um hvað það snýst. Stundum gæti maður haldið að það snúist um það hvort útlendingur má eiga íslenska fósturjörð. Lagalega virðist það vera málið og svarið við því er að ef útlendingurinn er ríkisborgari á EES svæðinu þá er [...]
Forsenda sáttar
Engum blandast hugur um að fjölþætt eyðilegging náttúrunnar við byggingu Kárahnjúkavirkjunar var óhæfuverk gagnvart náttúru Íslands og möguleikum komandi kynslóða til að njóta hennar. Stóru landssvæði var sökkt, einstakar fossaraðir eyðilagðar, fljót fært úr náttúrulegum farvegi sínum yfir í annað fljót svo bæði hljóta varanlegan skaða af. Upptalningin er löng. Nýlega staðfesti forstjóri Landsvirkjunar það [...]
Vítamínsprauta fyrir nýsköpun í atvinnulífinu
Steingrímur J Sigfússon, fjármálaráðherra, skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann fjallar um aukin framlög til nýsköpunar í atvinnulífinu. Sjá einnig umfjöllun hér á Eyjunni. Tilefnið er að nú við uppgjör skattaárs fyrirtækja endurgreiddi ríkissjóður tæplega hálfan milljarð króna til fyrirtækja sem höfðu ráðist í skilgreind nýsköpunar- og þróunarverkefni á árinu 2010. Þetta er [...]
Ungt fólk, húsnæðismál og lífeyrissjóðir
Skortur á traustum, almennum leigumarkaði er helsta ástæða þess að ungt fólk hefur neyðst til að kaupa húsnæði á uppsprengdu verði án þess að eiga fyrir útborgun. Stjórnvöld, lífeyrissjóðir og verkalýðssamtök bera hér höfuðábyrgð. Í nágrannalöndunum hafa lífeyrissjóðir gjarna fjárfest í leigumarkaði. Það hefur gefið hóflega en trygga ávöxtun og skapað þeim sem eru að [...]
Bræðum ekki ættarsilfrið
Hagkerfi heimsins er ósjálfbært. Á hverjum degi erum við að ganga á auðlindir Jarðar, stela frá börnunum okkar. Bræða ættarsilfrið. Það gengur ekki til lengdar. Við þurfum að finna leiðir til að láta efnahagslegar framfarir fara saman við varðveislu auðlinda. Leiðir til að lifa “af Jörðinni” en ekki “á Jörðinni” þangað til allt er búið. [...]
Dofri Hermannsson