Færslur fyrir apríl, 2010

Föstudagur 30.04 2010 - 14:50

Þjóðstjórnarpælingar

Foringi Sjálfstæðismanna í Reykjavík segist vilja þjóðstjórn í borginni. Það eru áhugaverðar pælingar. Hún segir að það sé fáránlegt að tæpur helmingur borgarfulltrúa sé ekki að vinna neitt annað en að gagnrýna það sem meirihlutinn er að gera. Veldur hver á heldur, segi ég. Eftir Hrunið bauðst Samfylkingin, ásamt Vinstri grænum, af fyrra bragði til [...]

Mánudagur 19.04 2010 - 12:41

Laupurinn í Laugarnesinu

Hrafninn er gjarn á að safna alls kyns drasli í hreiðrið sitt sem oft er nefnt laupur. Hrafn Gunnlaugsson ber þar nafn með rentu. Það er ótrúlegt hvað hann hefur komist upp með magnaðan frekjugang gagnvart umhverfi sínu í Laugarnesinu. Hann hefur látið stórvirkar vinnuvélar ryðja hluta af friðlýstri fjöru neðan við hýbýli sín og [...]

Miðvikudagur 07.04 2010 - 16:12

Nýtt lógó Sjálfstæðisflokksins

Ímyndarsérfræðingar Valhallar munu nú vera að íhuga það í mikilli alvöru að skipta fálkanum út úr merki Sjálfstæðisflokksins og setja þar í staðinn mynd af einstæðum fagurbláum storki sem sjá má frétt um á visir.is. Telja þeir að það gæti bætt mjög ímynd flokksins, sérstaklega gagnvart barnafjölskyldum en á því mun vera mikil þörf, sérstaklega [...]

Miðvikudagur 07.04 2010 - 08:49

Forgangsröðun Hönnu Birnu

Það urðu víða fjörugar umræður um baráttu borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna fyrir golfvelli á tímum niðurskurðar og atvinnuleysis. Á þessari litlu síðu spunnust líka umræður og greinilega var Vefnaðardeild Valhallar send af stað með línuna að þetta sé allt á ábyrgð Samfylkingarinnar vegna samnings borgarstjóra við Golfklúbb Reykjavíkur 2006. Stutta svarið við því er að eftir Hrun [...]

Þriðjudagur 06.04 2010 - 17:33

Kökur og golf

“Af hverju borða þau ekki kökur?” er sagt að Marie Antonett hafi spurt þegar henni var sagt að fólk ætti ekki brauð. Þessu mun hafa verið skrökvað upp á hana en það er hins vegar engu skrökvað upp á meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarmannsins í borginni í stóra golfvallarmálinu. Af hverju spila þau ekki golf? spyr meirihlutinn [...]

Föstudagur 02.04 2010 - 13:23

Auðmýkt er vanmetin

Í dag lesa sveitastjórnarmenn Passíusálmana í Grafarvogskirkju. Í minn hlut komu sálmar 48, um Jesú síðusár, 49 um Krístí greftran og 50 um varðhaldsmennina. Hin einlæga auðmýkt manns sem veikur bíður dauða síns er fögur og skín alls staðar í gegn. Hann minnir á að lífið er stutt og lukkan hverful. Hverju sem menn trúa [...]