Færslur fyrir júlí, 2009

Fimmtudagur 16.07 2009 - 15:21

Borgarstjóri náði næsta vagni

Það góða við strætó er að þótt maður missi af vagni kemur yfirleitt annar skömmu síðar. Hve skömmu síðar er að vísu sífellt deilumál þeirra sem eru hlynntir og á móti strætó. Altént gerðust þau ánægjulegu tíðindi á fundi borgarráðs í dag að borgarstjóri náði næsta vagni í stóra strætómálinu svo að segja. Þar nýtti [...]

Þriðjudagur 14.07 2009 - 21:41

Borgarstjóri missir af strætó

2. júlí var lögð fram í borgarráði tillaga um endurfjármögnun Strætó bs. Í henni fólst að sveitarfélögin sem eiga Strætó bs. (og skuldir þess) taka yfir hluta skuldana að uppfylltum vissum skilyrðum. Skilyrðin eru afar ströng og krefjast þess í raun að fyrirtækið mæti allri hækkun launa, olíu og annarra aðfanga fyrirtækisins næstu fimm árin [...]

Föstudagur 03.07 2009 - 12:39

Leyndarmál á Laugavegi

Þetta er best geymda leyndarmál Laugavegarins, ekki síst á svona fallegum degi. Góðir Reykvíkingar, hellið upp á kaffi, smyrjið brauð, setjið ásamt ávöxtum og fleiri drykkjum að eigin vali í körfu. Grípið teppi og góðan reyfara með ykkur á leiðinni út og eyðið svo því sem eftir er dagsins hér:

Fimmtudagur 02.07 2009 - 11:37

Hvalreki í Reykjavíkurhöfn!

Rannveig Grétarsdóttir hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu verður gestur minn í Fimmtudagssíðdegi – ráðlögðum vikuskammti af bjartsýni – á Útvarpi Sögu á milli kl. 5 og 6 í dag. Hún mun segja okkur frá ævintýralegum vexti fyrirtækisins en á 8 árum hefur fjöldi gesta í hvalaskoðun hjá fyrirtækinu vaxið úr 2.500 í 55.000. Rannveig telur að Elding [...]