Föstudagur 20.03.2009 - 22:00 - 1 ummæli

Íbúalýðræði í orði en ekki á borði

Niðurrif vatnstanks á Hallsteinshöfða í Grafarvogi hefur vakið síglidar en áleitnar spurningar um viðhorf meirihlutans í borgarstjórn til íbúasamráðs og íbúalýðræðis. Allt frá því hverfisráðin í borginni voru stofnuð hafa þau og hugmyndafræðin að baki þeim verið Sjálfstæðisflokknum þyrnir í augum. Það er þess vegna ekkert undarlegt að meirihlutinn í borginni telji óþarft að virða óskir íbúa í Grafarvogi – kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokks og B-lista vita svo mikið betur en íbúar sjálfir hvað er þeim fyrir bestu.

Af gefnu tilefni lagði Samfylkingin þessa fyrirspurn fram í borgarráði í gær:

Fyrirspurn um Vatnstank í Grafarvogi

Í fyrrakvöld var rifinn vatnstankur frá tímum Marshall-aðstoðarinnar í Grafarvogi. Þetta var gert þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar borgaryfirvalda, samþykktir hverfisráðs Grafarvogs og óskir íbúa um að vatnstankinum mætti umbreyta í frábæran útsýnisstað og gullmola í hverfinu. Sú hugmynd var ein þeirra sem eindregnasta stuðninginn fékk í íbúasamráðinu 1, 2 og Reykjavík.

Spurt er:

  • Hver tók ákvörðun um rif vatnstanksins?
  • Hver er afstaða borgarrstjóra til þess?
  • Hvernig verður unnið úr þeim skaða sem orðinn er og hverjar eru fyrirætlanir um svæðið?
  • Hvers vegna hefur óskum íbúa úr 1, 2 og Reykjavík ekki verið fylgt eftir?
  • Hver hefur umsjón með eftirfylgni verkefnisins?
  • Hvað líður ákvörðunum um einstök verkefni og hugmyndir úr 1, 2 og Reykjavík?

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (1)

  • Halla B. Þorkelsson

    Greinilegt að íbúalýðræði er fótum troðið af borgarstjóra og meirihlutanum. Megi þeir hafa skömm af þessu athæfi !

Rita ummæli

Þú verður að vera innskráð/ur til að rita ummæli.