Þriðjudagur 10.04.2012 - 11:43 - 4 ummæli

Góð leið til að kynnast Biblíunni

Mig langar að vekja athygli á tilboði sem hefst í Laugarneskirkju á morgun, miðvikudag 11.4. kl. 16:15. Þetta tilboð er ætlað fólki sem langar til þess að kynnast Biblíunni betur og dýpka sitt innra líf.

Um leið er hér að ræða þróunarverkefni sem er liður í doktorsvinnu vinar míns sr. Gregori Aikins, sem margir hafa kynnst. Næsta haust hyggjumst við stofna félag um þessa vinnu sem bera mun heitið Pílagrímafélagið en núna langar okkur að fá áhugasamt fólk í svolitla þróunarvinnu fjóra miðvikudaga í röð frá 11. apríl til 2. maí. Við munum koma saman í Gamlasalnum í Laugarneskirkju þessa daga kl. 16:15 – 17:30 og tileinka okkur þrjár einfaldar vinnuaðferðir sem um aldir hafa reynst vel öllum sem róa vilja á dýpri mið í andlegum efnum.

Kostnaður er enginn en gott er að mæta með Biblíu undir höndinni. Áhugasamir geta einfaldlega mætt eða sent fyrirspurnir á netfangið mitt: srbjarni@ismennt.is

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (4)

  • Alfred Jónsson

    Sæll.

    Þetta kann að vera góð leið til að kynnast biblíunni. Hitt er öllu verra að margir eiga erfitt með að koma auga á góða ástæðu til að kynnast biblíunni.

  • Alfred: Fullt af góðum sögum í biblíunni sem leggja grunninn að ýmsum bókmenntaperlum á Vesturlöndum. Ekkert vitlausara að kynna sér hana þess vegna heldur en. t.d. Hómerskviðum. En væntanlega þarf maður að vera eitthvað trúaður til að halda út svona námskeið …

  • Alfreð,
    Ég held að fullt af fólki vilji kynnast Biblíunni og geri það. Nákvæmlega eins og þú bendir á þá gæti þetta verið góð ástæða fyrir marga til að kynnast Biblíunni betur.

  • Besta leiðin til að kynnast biblíunni betur er að lesa hana.
    Þá kynnist fólk líka köflunum sem prestarnir vilja lítið kannast við.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af átta og einum? Svar: