Bíóblogg

blogg á eyjan.is

Týndi drengurinn: Corey Haim 1971-2010

10.3 2010 | 15:55 | Rita ummæli

Corey Haim er farinn frá okkur. Litli drengurinn sem barðist við varúlfa í Silver Bullet (1985), vampírur í The Lost Boys (1987) og umferðareglur í Licence to Drive (1988), fannst látinn á heimili sínu í morgun. Flest bendir til þess að um ofskammt eiturlyfja sé að ræða.

Hans fyrsta almennilega breik var unglingamyndin Lucas (1986) þar sem hann lék á móti Winonu Rynder og Charlie Sheen. Ekki fór mikið fyrir honum á síðustu árum, eins og gjarnan er raunin hjá eighties stjörnum. Glöggustu bíónördarnir tóku þó líklega eftir honum í Crank: High Voltage (2009), þar sem hann fór á kostum sem sítt-að-aftan fíflið Randy.

Haim var mikill áhugamaður um íshokkí og myndasögur. Auk þess sem hann spilaði á hljómborð í frístundum.

Blómatími hans var á níunda áratugnum, samferða nafna hans, starfsbróður og sálufélaga; Corey Feldman (Goonies, Stand by Me). Coreyarnir tveir léku oft saman í myndum, og prýddu saman mörg bravó-plagötin. Svo samrýmdir voru þeir að þeir urðu meira að segja has-beens samtímis, og eignuðust sinn eigin has-been raunveruleikaþátt nokkru síðar (The Two Coreys, 2007-2008). Þar mátti fylgjast með sambandi þeirra í blíðu og stríðu.

Báðir Coreyarnir höndluðu ferilsdýfu sína með hjálp eiturlyfja. Báðir fóru síðan á snúruna, en það lítur út fyrir að Haim hafi fallið. Hvað Feldman gerir án hans má guð vita.

Corey Haim var einn af þeim mörgu sem fóru illa út úr Hollywood. Eins og hann lofaði nú góðu sem barnastjarna. Maður spyr sig: Hvað klikkaði? Eða eins og hljómsveitin The Thrills komst að orði:

Á léttari nótum: Chuck norris er sjötugur í dag.

Hulli.

Hugleikur
Flokkar: Barna og fjölskyldu
Efnisorð: ,



Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og fjórum? Svar: