Ég er fæddur í Reykjavík árið 1953 og er skólastjóri í Háteigsskóla og hef verið það síðan haustið 1997, þar áður aðstoðarskólastjóri skólans frá 1991. Stjórnmál hafa verið áhugamál í tómstundum mínum frá 2005 að ég settist í stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík. Ég var formaður félagsins frá 2007 til 2009. Það er mikilvægt að finna leiðir til að sinna ábyrgð borgaranna á stjórnmálum með því að virkja áhuga þeirra og tryggja raunveruleg áhrif á framvindu og þróun samfélagsins. Þessi áhrif geta verið formleg innan stjórnmálaflokks og óformleg með aðhaldi gagnrýninnar, upplýstrar og kurteisrar samræðu. Kosningar á fjögurra ára fresti duga borgurunum ekki í nútíma samfélagi sem breytist hratt.