Færslur fyrir október, 2009
Reykjavíkurflugvöllur
Framtíð Reykjavíkurflugvallar þarf að ákveða með formlegum hætti með löngum fyrirvara. Það þarf að ákveða hvort hann eigi að vera eða hvort hann eigi að fara. Skipulagsákvarðanir í Vatnsmýrinni eiga að taka mið af niðurstöðunni. Nú hefur maður það á tilfinningunni að verið sé að bola flugvellinum í burtu. Það er að [...]
Það sem koma skal?
Bo Bojesen sem teiknaði daglega í Politíken á árum áður. Hann var nokkurskonar Halldór Baldursson blaðsins. Hjálagða mynd teiknaði hann fyrir 50 árum, árið 1959, þegar miklar umræður voru í Danmörku um opið plan í hönnun heimila. Þetta gekk að mestu út á að opna milli eldhúss og borðstofu og þaðan inn í stofu. Þessi [...]
Betri Reykjavík
Þegar ég var ungur maður og var að hasla mér völl á starfsvettvangi arkitekta spurði ég Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt sem þá var forstöðumaður Borgarskipulagsins hvað ungur maður ætti að gera til þess að nálgast skipulagsverkefni hjá borginni. Hún gaf mér þau ráð að sýna áhuga, taka þátt í umræðunni, styðja góðar hugmyndir og hafa [...]
Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu
Johannes Magdahl Nielsen (1862-1941) sem teiknaði Safnahúsið (Þjóðmenningarhúsið) við Hverfisgötu var þekktur arkitekt í Danmörku fyrir réttum 100 árum um það leyti sem húsið var vígt 1909. Það er útbreiddur misskilningur að hann hafi einnig teiknað Konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn, hann var hins vegar aðstoðarmaður prófessors Hans J. Holm við hönnun þess. Safnahúsið var [...]
Umræður um arkitektúr
Nú er ég búinn að skrifa 3 færslur á viku hér á vefinn um arkitektúr, skipulag og staðarprýði í einn mánuð. Hugmyndin var að gera tilraun í 2-3 mánuði og athuga viðbrögð og áhuga. Ef áhugi minn eða lesendanna er undir væntingum hætti ég, annars má búast við að þetta haldi eitthvað áfram. Netheimar [...]
Varist stjörnuarkitekta
Nei, þetta er ekki verk óþroskaðra krakka á fyrsta ári í arkitektaskóla sem eru að leika sér með kubbana sína. Teiknistofa Rem Koolhaas, OMA er þarna að leggja fram nýjar hugmyndir sínar um íbúðabyggð “The Interlace” í Singapore Þetta eru íbúðabyggingar sem eru samtals um 170 þúsund fermetrar og rúma 1040 íbúðir auk ýmissa [...]
Byggingarlistin er útundan
Maður þarf að leita með smásjá til þess að finna rýni í fjölmiðlum, sem gagn er að og fjallar um byggingarlist, á meðan t.d. bókmenntir eru á síðum blaða og í ljósvakamiðlum á hverjum degi. Það er haldið úti heilum klukkutíma þætti í sjónvarpinu um bókmenntir einu sinni í viku. Og þar [...]
Háskólatorg.
Að frumkvæði Páls Skúlasonar rektors og með stuðningi Háskólasjóðs Eimskipa hefur nú risið miðstöð stúdenta og starfsfólks Háskóla Íslands. Skólinn samanstendur af mörgum deildum í mismunandi byggingum sem sköruðust lítið. Þverfagleg samskipti nemenda voru í lágmarki. Með Háskólatorgi hefur þetta breyst. Götur stúdenta úr öllum deildum krossast í þessum byggingum þegar þeir sækja fyrirlestra, [...]
“Vegasjoppa” í Borgartúni
Að mínu mati skila íslenskir arkitektar frá sér, að mestu, ágætri byggingalist miðað við nágrannalöndin. Ég hef þá tilfinningunni að það séu fleiri góð hús hér á landi á hverja 1000 íbúa en víða annarsstaðar. Öðru máli gegnir um skipulagið. Þar sýnist mér við vera eftirbátar nágrannaþjóðanna. Það má segja að við höfum verið [...]
Eru of margir arkitektar á Íslandi?
Það er ljóst, að í því hallæri sem nú stendur yfir, er offramboð á arkitektum á Íslandi. Sennilega er nú allt að 80% atvinnuleysi í stéttinni, ef frá eru taldir þeir arkitektar sem vinna hjá ríki og sveitarfélögum. Samkvæmt iðnaðarráðuneytinu eru nú um 440 arkitektar á Íslandi með viðurkenningu á starfsheitinu og ætli það [...]
Hilmar Þór Björnsson arkitekt