Laugardagur 22.10.2011 - 12:08 - 6 ummæli

Varaformannsefni Hönnu Birnu

Hanna Birna Kristjánsdóttir hlýtur að gefa kost á sér til formanns Sjálfstæðisflokksins.

Úr því sem komið er þá yrði það stórskaðlegt fyrir hana ef hún hrykki frá núna.

—–

Hún myndi líka veikjast við að gefa aðeins kost á sér sem varaformaður.

Framboð til formanns nú er eina leiðin fyrir Hönnu Birnu að sýna flokksmönnum sínum að hún sé dugandi leiðtogaefni.

Jafnvel þó svo færi að Hanna Birna tapaði naumlega í formannskosningu fyrir Bjarna Benediktssyni þá hefði hún styrkt stöðu sína sem “hinn leiðtoginn” í flokknum.

Hún gæti jafnvel tekið varaformannsstólinn mótþróalaust beint í kjölfarið.

—–

Hanna Birna hefur fengið mikinn meðbyr í skoðanakönnunum en eins og allir vita þá geta vindar breyst snögglega í stjórnmálum.

Þess vegna bíður hún eins lengi með að tilkynna framboð sitt eins og hún getur.

Mín ágiskun er að hún tilkynni 7-10 dögum fyrir upphaf landsfundarins.

En yfirvofandi framboð Hönnu Birnu hefur fleira í för með sér.

Stóru stjórnmálaflokkarnir á Íslandi starfa eftir óskráðri reglu sem er sú að formaður og varaformaður verði að vera af gagnstæðu kyni.

Í ljósi þess að nær öruggt er að Hanna Birna fari fram þá er ljóst að þeir landsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sem kjósa hana sem formann flokksins munu vilja kjósa einhvern karl til að gegna embætti varaformanns.

Það er spurning hverjir komi helst til greina?

—–

Varaformannsefni Bjarna verður væntanlega áfram Ólöf Nordal og margir öflugustu þingmannanna eru hollir formanninum.

Illugi Gunnarsson gæfi  aldrei kost á sér í varaformanninnn til að veikja ekki vin sinn Bjarna í formannsslagnum. Að minnsta kosti ekki fyrr en það liggur fyrir hver verði formaður.

—–

Herráð Hönnu Birnu hefur örugglega rætt um mögulegt bandalag við einhvern metnaðarfullan karl.

Það er spurning hvort Hanna myndi kjósa Kristján  Þór Júlíusson sem sinn varaformannskandídat.

Kristján er utangarðs hjá Bjarna og gæti gefið Hönnu Birnu innkomu hjá landsbyggðarfólki á fundinum. En það er einn helstu veikleiki framboðs hennar í dag að hún er úr Reykjavík og andsnúin veru flugvallarins í Vatnsmýri.

—–

Kristján hefur líka notið stuðnings Geirs, Gulla og Deiglu-armsins í flokknum og sá hópur hefur sýnt það að hann er engan veginn búinn að gefa áhrif sín í flokknum upp á bátinn.

Það eru því áreiðanlega áhugaverð plott í gangi í bakherbergjum Valhallar og skyldum viðarklæddum vistarverum þessa dagana.

Flokkar: pólitík · vangaveltur

«
»

Ummæli (6)

  • Eru allir búnir að afskrifa Guðlaug þór?

  • Jón Sig.

    Verður Sjálfstæðisflokkurinn með framboð í næstu þingkosningum? Það getur ekki verið.
    Það er ljóst að flokkurinn þarf að fara í 10 ára endurhæfingarmeðferð og verður sjálfkrafa utan þings á meðan.

    Stendur eitthvað annað til?

  • Verður Kristján í framboði í næstu kosningum?
    .
    Spillingarslóðin á Ísafirði og Akureyri ætti að vera of þungur baggi.
    .
    Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn ekki að taka til í sínum ranni?

  • Af hverju “hlýtur” Hanna Birna að gefa kost á sér? Er eitthvað sem bendir til þess? Hvar hefur það komið fram? Einhverjir samfylkingar miðlar hafa reyndar verið að nuddast í þessum málflutningi af og til, en í viðtölum við Hönnu Birnu sjálfa kemur nákvæmlega hvergi fram nokkuð sem bendir til þess að hún bjóði sig fram.

    Hver er þessi “stórskaði” fyrir hana ef hún ekki myndi bjóða sig fram nú? Það er nákvæmlega enginn skaði bjóði hún sig ekki fram. Hún væri enn kandidat sem gæti tekið við flokknum.

    Er það styrkleikamerki að bjóða sig fram í formann og tapa? Ef Hanna Birna myndi bjoða sig fram gegn Bjarna Ben. og tapa, þá væri ferill hennar í stjórnmálum fyrst laskaður. Sá sem ályktar eitthvað annað hefur ekki mikið vit á stjórnmálum.

    Að byrja á að bjóða sig til formanns Sjálfstæðisflokksins og lúta lægra haldi hefur ekki þótt ávísun á stöðustyrkingu hingað til. Hefur einhver einstaklingur tapað formannskjöri í Sjálfstæðisflokknum og unnið svo síðar?

    Það má heldur ekki gleyma þeirri staðreynd að Hanna Birna náði ekki að halda borginni eftir síðustu borgarstjórnarkosningar. Að ná ekki að halda borginni , og fara svo í framboð til formanns tæpum tveimur árum síðar og tapa getur ekki talist styrkleikamerki á nokkurn hátt.

    Það er líklega minna um “plott” í Valhöll núna en oft áður. Flokkurinn hefur hægt og bítandi verið að vinna sig til baka eftir útreiðina í síðustu kosningum. Mælist nú með 35- 40% fylgi í skoðanakönnunum.

    Bjarni Ben. er reyndar undir miklum þrýstingi að standa sig. Hann hefur ekki átt sjö dagana sæla. Hann fær tækifæri til að sýna hvað í honum býr í næstu kosningum sem verða vonandi fyrr en síðar. Þeir sem hafa einna helst verið að afskrifa hann eru andstæðingar Sjálfstæðisflokksins.

    Reyndir PR mógúlar sjá í gegnum slíkar afskriftir keppinauta úr öðrum flokkum. Það er bara vinna Össurar, Marðar og co. að fabúlera gegn sitjandi formanni keppinautanna. Skárra væri það nú hjá þeim ef þeir myndu ekki gera eitthvað slíkt.

    Sá flokkur sem stendur verst að vígi hvað varðar leiðtoga eftir daginn í dag er Samfylking. Þar er algerlega óbreytt ástand. Formaðurinn sem hafði traust um 70% þjóðarinnar þegar hún tók við sem forsætisráðherra, nýtur nú ekki trausts nema tæplega 35% eigin flokkssystkyna. Menn þurfa ekki að vera slyngir í próesentureikning til að sjá að traust þjóðarinnar til nýkjörins formanns og forsætisráðherra er í algjöru lágmarki.

    Það er frétt helgarinar að enginn hafi haft dug í sér innan raða kratanna að bjóða sig fram og gera eitthvert game úr þessum flokksfundi. Hann varð að mestu bara “já og amen” samkoma, nema hvað einstaka fulltrúi var að álykta gegn fjárlagafrumvarpi eigin flokks, sem eru svo sem fréttir í sjálfu sér, en þó ekki ef menn eru að ræða ríkisstjórarflokkana. Þar á bæ er það frekar orðin almenn regla en undantekning að stór hluti þingmanna flokkanna greiði atkvæði gegn eigin flokki í mikilvægum málum. Samstaðan er við frostmark.

  • Bjarni Kjartansson

    Mikið lagar þig til, að Flokkurinn skjóti sig í fótinn og kjósi Kristján 1. þingmann Samherja sem varaformann.

    Þér verður ekki að þeirri ósk þinni.

  • Kristján Elís

    það er nú gaman að því að hafa hugrenningar sjallanna skjalfest hér svona þegar kemur að næstu helgi;;))))

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af þremur og einum? Svar: