Ákvörðun Illuga Gunnarssonar um að taka sér leyfi frá þingstörfum er skynsamleg út frá pólitísku sjónarmiði.
Af einhverjum ástæðum hefur sú hefð skapast á Íslandi, að taki stjórnmálamenn pólitíska ábyrgð á erfiðum málum jafngildi það yfirlýsingu um sekt.
Þessu þarf að breyta.
—–
Hugsanlegt er að Illugi komi enn sterkari tilbaka, fari svo að hann verði hreinsaður af ábyrgð á þeim málum sem eru til skoðunar varðandi stjórn peningarmarkaðssjóðanna hjá Glitni.
Sé þá alveg laus við þetta mál – bæði í lagalegum og pólitískum skilningi.
Illugi hefur, líkt og aðrir sem bendlaðir eru við bankahrunið með e-h hætti, ekki getað beitt sér fyllilega í opinberri umræðu undanfarin misseri.
Sem er að sjálfsögðu óþolandi staða fyrir hvaða stjórnmálamenn sem er að búa við.
Og ekki síður þann stjórnmálaflokk sem á honum ber ábyrgð.
Maður sem stefnir að formennsku í Sjálfstæðisflokknum getur ekki verið, annars vegar langar stundir í felum og hins vegar bitlaus í mikilvægum málum.
—–
Það þarf mörgu að breyta í íslenskri stjórnmálahefð á næstu misserum.
Vonandi eru leyfi og afsagnir stjórnmálamanna merki um það koma skal.
Sumir þeirra hefðu reyndar átt að gera það miklu fyrr.
T.d. hefði Björgvin G. Sigurðsson átt að segja sig frá ráðherradómi um leið og honum varð ljóst hversu gróflega Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gekk framhjá honum við stjórn bankamála.
Andrés Jónsson
Rita ummæli